sun. 15. júní 2025 22:25
Magnús Már Einarsson.
„Þá verð ég alveg ruglaður

„Við lentum undir snemma leiks en það missti enginn trúna og við misstum ekki móð, við héldum bara áfram,“ sagði Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar eftir 4:1-sigur liðsins gegn ÍA í Bestu deild karla í knattspyrnu í kvöld. 

„Allir sem spiluðu leikinn, hvort sem þeir byrjuðu eða komu inn á, voru með frábært vinnuframlag og þetta var frábær frammistaða. Það var mikil orka á bekknum, orka í stúkunni og þetta var bara ótrúlega skemmtilegt kvöld hérna í Varmá eins og þau eiga að vera,“ sagði Magnús í viðtali við mbl.is eftir leikinn í kvöld.

Afturelding lenti 1:0 undir eftir 17 mínútur en kom til baka og vann leikinn 4:1.

„Við misstum aldrei trúna og mér finnst það lýsa þessu. Trúin fór aldrei og við jöfnum frekar fljótlega og fáum hættulegar sóknir til þess að skora annað í fyrri hálfleik sem við gerum ekki. Í seinni hálfleik byrja Skagamenn af ágætis krafti en við náum að loka á þær aðgerðir og svo náðum við að snúa þessu okkur í hag.“

Jökull Andrésson fékk högg snemma leiks og varamarkmaður Aftureldingar var duglegur að hita upp allan leikinn. Undir lok fyrri hálfleiks þurfti Sigurpáll Melberg aðhlynningu og fór út af í hálfleik.

„Arnar (Daði Jóhannesson, varamarkmaður) var bara að vera klár ef það er eitthvað en Jökull er alveg heill, þetta er ekkert til þess að hafa áhyggjur af en Sigurpáll meiddist í náranum og þurfti að fá skiptingu. Menn þurftu að fá skiptingar út af hnjaski og öðru og mér fannst geggjað að sjá hvað aðrir stigu upp og allir lögðu sitt af mörkum í dag.“

 

Afturelding fór úr 11. sæti upp í sjöunda með sigrinum en Magnús er ekkert að spá í því.

„Ég horfi ekki á töfluna í júní svo ég hef ekki hugmynd hvert við stukkum eða hvar við vorum eða neitt. Ég veit að við erum með 14 stig eftir fyrri umferðina sem er nokkuð ásættanlegt en við viljum meira og getum vonandi gert betur í seinni umferðinni.  

Við ætlum að enda á góðum stað en ég veit að ef ég fer að horfa of mikið á töfluna þá verð ég alveg ruglaður svo ég ætla að leyfa því að spilast eins og það spilast og fara inn í alla leiki til þess að vinna. Markmiðið er frekar að reyna að gera betur í seinni umferðinni en í fyrri.“

 

til baka