sun. 15. júní 2025 23:00
Vuk Oskar Dimitrijevic hefur blómstrað með Fram á leiktíðinni.
Sér ekki eftir Vuk

Vuk Oskar Dimitrijevic gerði fyrra mark Fram í 2:0-sigrinum á hans gamla liði í FH í Bestu deildinni í fótbolta í kvöld og hann hefur blómstrað í Úlfarsárdalnum, eftir fjögur ár hjá FH þar sem hann náði ekki að sýna sitt besta.

https://www.mbl.is/sport/efstadeild/2025/06/15/fram_sendi_fh_nidur_i_fallsaeti/

Mbl.is ræddi við Heimi Guðjónsson þjálfara FH um hans gamla lærisvein en Vuk skoraði aðeins þrjú mörk í 20 leikjum á síðustu leiktíð. Hann er kominn með sex í ellefu leikjum á yfirstandandi tímabili.

„Ég er ánægður með að Vuk gangi vel. Sé ég eftir honum? Nei - hann var búinn að vera í fjögur ár í FH og undir handleiðslu margra frábærra þjálfara en það náði enginn að ná því besta út úr honum. Það er jákvætt fyrir hann að hann sé að standa sig hér,“ sagði hann.

til baka