mán. 16. júní 2025 06:30
Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, á heiðurinn af vikumatseðlinum að þessu sinni.
„Kunni ekki að sjóða pasta þegar ég flutti að heiman“

Sú sem á heiðurinn af vikumatseðlinum að þessu sinni er Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi. Hún er þriggja barna móðir, en börnin eru 2, 6 og 8 ára og býr Ásta í Þingholtunum ásamt fjölskyldu sinni. Hún hefur nóg á sinni könnu en undir Festi heyra fjölmörg þekkt fyrirtæki á borð við Krónuna, Lyfju, ELKO og N1 ásamt fleirum.

Ásta reynir auk uppeldishlutverksins að setja heilsuna í forgrunn en viðurkennir að tíminn sé oftar en ekki af skornum skammti og því sé nauðsynlegt að í mataræði sé horft til heilnæmra og bragðgóðra lausna sem einfalt sé að útbúa á sem skemmstum tíma.

„Við höfum lagt áherslu á það í Krónunni að einfalda fólki lífið og það geti kippt með sér hálftilbúnum lausnum sem eru hollar og næringarríkar og einfalt að klára að elda. Butter Chicken og Satay-kjúklingaréttirnir frá Matseðli í Krónunni eru einstaklega þægilegir sem redding – eða jafnvel bara hrísgrjónagrauturinn frá okkur.

Mamma sá um að elda og sagði alltaf að ég ætti að spara þá krafta mína því nóg yrði að gera í þeim efnum sem og að sinna öðrum heimilisstörfum, þegar ég yrði eldri. Ég slapp því frekar vel á meðan ég bjó heima en mögulega of vel því ég kunni ekki einu sinni að sjóða pasta þegar ég flutti að heiman í fyrsta sinn um tvítugt og bjó ein erlendis,“ segir Ásta og hlær.

Skólast mest til í Frakklandi og Danmörku

„Í dag hef ég ofsalega gaman af eldamennsku, sérstaklega þegar ég hef góðan tíma, en það er nú ekki oft nema um helgar og á hátíðum. Við Bolli Thoroddsen, eiginmaður minn, erum með þrjú börn og viljum reyna að gefa þeim þokkalegt mataruppeldi og því er reynt að blanda saman hollustu og fljótelduðum réttum – og sem betur fer er ég búin að besta ákveðinn lista af slíkum uppskriftum sem ég nota óspart.“

Ætli ég hafi ekki skólast hvað mest til á árunum sem ég bjó í Frakklandi og Danmörku, en í Japan fannst mér eldamennskan oft og tíðum aðeins of flókin þó svo soja og miso geti komið við sögu í mínum réttum. Bolli sér um hið alklassíska karlmannshlutverk sem er að grilla steikur og borgara. Þar falla hlutverkin alveg klassískt hjá okkur – og hlæjum við alltaf jafnmikið þegar hann býður öllum „gjörið þið svo vel“ þegar hann gengur stoltur inn með grillmatinn, þó að allt meðlæti hafi verið undirbúið af öðrum heimilismeðlimum,“ segir Ásta sposk á svipinn.

 

Oftar en ekki með nokkra áhugasama hjálparkokka

„Ég verð líka að viðurkenna að það er fátt sem róar hugann jafnvel og eldamennska. Ef ég fæ næði til að einbeita mér að undirbúningnum, saxa niður grænmetið, setja í fallegar skálar, kveikja jafnvel á smá jazzi í bakgrunninum og komast í eldamennskuflæði, það er dásamlegt! En oftar en ekki er ég með nokkra áhugasama unga hjálparkokka sem þarf að hafa augun með þegar þeir fá að skera tómat og papriku en finna þá mikið til sín og það gefur ekki síður góða stund.“

 Hér gefur að líta vikumatseðilinn hennar Ástu fyrir komandi viku:

Mánudagur – Lúða í sojasmjörsósu

„Mér finnst ekki mánudagur nema ég komi við í rammíslenskri fiskbúð og taki stöðuna á þjóðfélagsumræðunni með eigendum. Ég skima alltaf eftir því hvort stórlúða hafi nokkuð óvart komist með í trollið og næli mér þá í nokkrar steikur og býð tengdó að koma, en hún hefur kennt mér að elda stórlúðu á einfaldan máta! Skelli henni í ofnfast mót með góðum klípum af smjöri, hvítvíni, sítrónu, salti og pipar. Ég elda hana í 15-20 mínútur eftir því hversu þykkar steikurnar eru og borða helst með íslenskum kartöflum og einföldu salati.“

Líkast þessu væri þessi uppskrift:

https://www.mbl.is/matur/frettir/2005/08/15/luda_i_soja_smjorsosu/

Þriðjudagur – Taco og quesadilla

„Verður maður ekki að fylgja klukku hversdagsleikans og hafa Taco-Tuesday eða a.m.k. einhvers konar mat með mexíkönskum/amerískum áhrifum á þriðjudögum? Við elskum að borða vefjur af ýmsu tagi og ekki síst krakkarnir sem fá að velja hvað þeir setja í sína vefju. Hakk eða kjúklingur, eða hvort tveggja, er yfirleitt í boði ásamt hlaðborði af litríku grænmeti sem börnin og við fullorðna fólkið eigum helst að gleyma okkur í.“

Hér eru tvær uppskriftir sem líkjast hvað mest okkar þriðjudagsáherslum

https://www.mbl.is/matur/frettir/2024/10/01/taco_veislan_sem_bjargar_thridjudeginum/

https://www.mbl.is/matur/frettir/2023/03/15/geggjud_quesadilla_sem_tekur_enga_stund/

Miðvikudagur – Þorskhnakki með sítrónu, ólífum og kapers

„Ég kolféll fyrir franskri eldamennsku þegar ég bjó í Suður-Frakklandi. Þar lærði ég að meta ólífur, kapers, sítrusávexti og grænmeti beint af bændamarkaðnum. Sjávarfang í Suður-Frakklandi er í hávegum haft og margar góðar uppskriftir þaðan. Ein af mínum uppáhalds er rammíslenskur þorskhnakki með Suður-Frakklandsstemningu: sítrónu, ólífum og kapers.“

https://www.mbl.is/matur/frettir/2011/11/04/thorskhnakki_med_sitronu_olivum_og_capers_a_kartofl/

Fimmtudagur – Spagettí með kjötsósu

„Markmiðið í eldamennsku á okkar heimili er þó heilt yfir einfalt: Lykillinn er að fá börnin til að borða. Eftir fiskáherslum móðurinnar í byrjun viku, sem er alltaf smá brekka, er gjarnan skellt í eina klassíska kjötsósuuppskrift með pasta eða spagettí. Hún slær alltaf í gegn og er ekki verri sem nesti daginn eftir.“

https://www.mbl.is/matur/frettir/2019/08/12/besta_spaghetti_uppskriftin_med_kjotsosu/

Föstudagur – Blandaður sushiplatti

„Þó svo við elskum að fá okkur pítsur eða glóðvolgan borgara á föstudögum, þá er það ansi oft sem við drífum okkur upp í bústað eftir vinnu í lok viku og þá er lítill tími til að elda. Þá komum oftast við í Krónunni og kippum með okkur nokkrum bökkum af meinhollum og ferskum sushibitum frá Tokyo Sushi. Krakkarnir elska sushi og ekki ófáir bitar runnu niður þegar við vorum á ferðalagi í Japan um daginn. En svo höfum við alveg prófað okkur áfram með eigin framleiðslu sem hefur bragðlega séð lukkast mjög vel en útlitið ekki beint til að bera fram fyrir gesti.“

https://www.mbl.is/matur/frettir/2008/01/31/blandadur_sushiplatti/

Laugardagur – Grillaðar lambalundir

„Íslenska lambið klikkar aldrei og finnst mér bæði lambakonfektið ljúffengt en ekki síður klassískar lambalundir sem ég kaupi ókryddaðar frá kjötmeisturum okkar í Krónunni ekki síst ef ég hef tíma til að setja þær sjálf í lög fyrir daginn. Bolli grillar þessar elskur af alúð á meðan „húsfrúin“ útbýr meðlætið. Krakkarnir vitlausir í þennan úrvalsmat sem og vinir og vandamenn.“

https://www.mbl.is/matur/frettir/2023/07/07/omotstaedilegar_grilladar_lambalundir_a_salatbedi/

Sunnudagur – Coq au vin – ekta franskt

„Mamma var alltaf með heitan mat í hádeginu á sunnudögum. Ég elska þá hefð – þó svo sunnudagssteikin sé nú yfirleitt ekki reidd fram fyrr en um kvöldmatarleytið á mínu heimili. Allt sem fær að eldast á lægri hita í lengri tíma er einfaldlega bara gott. Í Frakklandi lærði ég að sjóða kjúkling í rauðvíni ofan í steypujárnspotti með alls kyns kryddjurtum og fersku grænmeti. Ef ég hef tíma skelli ég því í Coq au vin – sem einnig er ekki síðra daginn eftir.“

https://www.mbl.is/matur/frettir/2018/06/23/coq_au_vin_juliu_child/

 

til baka