sun. 15. júní 2025 22:12
Heimir Guðjónsson fylgist með sínu liði í kvöld.
Menn þurfa að fara að hugsa sinn gang

„Við byrjuðum ágætlega en svo færðum við Fram mark á silfurfati,“ sagði svekktur Heimir Guðjónsson þjálfari FH í samtali við mbl.is eftir tap gegn Fram, 2:0, í 11. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld.

https://www.mbl.is/sport/efstadeild/2025/06/15/fram_sendi_fh_nidur_i_fallsaeti/

Heimir var allt annað en sáttur við frammistöðu síns liðs í kvöld.

„Þeir eru góðir í skyndisóknum og eftir að við fengum á okkur mark var bara eitt lið inni á vellinum í fyrri hálfleik. Við vorum eftir á í öllu, töpuðum öllum einvígum og einn á móti einum stöðum.

Við gáfum lélegar sendingar og vorum heppnir að sleppa inn í hálfleikinn með 1:0. Við vorum betri í seinni hálfleik, sköpuðum einhver færi og það var andi í liðinu. Það var ekki nóg gegn góðu liði Fram,“ sagði hann.

 

FH hefur gengið afleitlega á útivelli í sumar og það hélt áfram í kvöld.

„Við erum búnir að spila sjö útileiki og tapa sex. Allir þessir tapleikir hafa verið á gervigrasi. Öll stigin sem við höfum fengið í þessu móti hafa verið á grasi. Þá er þetta orðið eins og 2022 þegar FH vann ekki leik á gervigrasi.

Menn þurfa að fara að hugsa sinn gang. Það er æft á gervigrasi allan veturinn en samt virðumst við aldrei geta mætt á gervigras. Við höfum tapað sanngjarnt á gervigrasi og það var niðurstaðan í dag,“ sagði hann.

FH fór niður í fallsæti með tapinu í kvöld en Heimir er ekki byrjaður að örvænta, þrátt fyrir áðurnefndar áhyggjur.

„Við höfum verið í fallsæti áður í þessu móti og þá rifum við okkur í gang. Vandræðin eru þau að við náum ekki stöðuleika. Sem betur fer er mótið bara hálfnað og það eru ellefu leikir eftir. Þú fellur ekki þótt þú sért í fallsæti eftir 22 leiki,“ sagði Heimir.

til baka