sun. 15. júní 2025 21:45
Fred gerir sig kláran til að koma inn á í kvöld.
Ferðuðust frá Brasilíu í Úlfarsárdalinn

„Það er gott að vera kominn aftur,“ sagði Brasilíumaðurinn Fred Saraiva í samtali við mbl.is eftir að hann og liðsfélagar hans í Fram sigruðu FH, 2:0, í 11. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld.

https://www.mbl.is/sport/efstadeild/2025/06/15/fram_sendi_fh_nidur_i_fallsaeti/

Hann var að leika sinn fyrsta leik í mánuð vegna meiðsla og kom inn á í seinni hálfleik. „Það eru fjórar vikur síðan ég meiddist gegn KA. Nú er ég meiðslalaus og mér líður vel. Fjölskyldan mín er líka mætt að horfa á mig í fyrsta skipti,“ sagði Fred en móðir hans og systir fóru í langt ferðalag til að fylgjast með sínum manni.

„Þau yfirgáfu Brasilíu á fimmtudag og mættu til Íslands í gær. Þetta er langt ferðalag en ég held þeim líki vel við Ísland. Ég sagði þeim að koma með hlý föt, þótt þetta eigi að vera sumar. Þau eru klár í íslenska kuldann,“ sagði hann.

En hvað var Fram að gera vel í kvöld?

„Við unnum einvígin okkar, þorðum að sækja á þá og setja boltann í teiginn. Við skoruðum tvö góð mörk og við þorðum á boltanum,“ sagði hann.

Vuk Oskar Dimitrijevic skoraði sitt sjötta mark í ellefta leiknum í deildinni fyrir Fram í kvöld en hann kom til Fram frá FH fyrir tímabilið.

„Að mínu mati er Vuk okkar besti leikmaður. Ég sagði Thiago í fyrra að við þurfum leikmann eins og Vuk í okkar lið. Okkur vantaði kantmann sem ræðst á bakverði sem gerir okkar vinnu auðveldari,“ sagði hann.

Fred og Portúgalinn Thiago eru miklir vinir en Thiago yfirgaf Fram eftir síðasta tímabil og samdi við félag í Kína.

„Ég sakna hans auðvitað. Hann er einn af mínum bestu vinum. Hann er að gera góða hluti í Kína. Það er gott að honum líður vel,“ sagði Fred.

til baka