Evrópu- og Frakklandsmeistarar Parísar SG unnu öruggan sigur á Atlético Madríd, 4:0, í B-riđli HM félagsliđa í knattspyrnu karla í Pasadena í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum í kvöld.
Í riđlinum eru einnig Botafogo frá Brasilíu og Seattle Sounders frá Bandaríkjunum, sem mćtast í nótt.
Í leik kvöldsins sýndi PSG hvers vegna ţađ er besta liđ Evrópu og réđi lögum og lofum.
Fabián Ruiz braut ísinn á 19. mínútu og Vitinha tvöfaldađi forystuna skömmu fyrir leikhlé. Stađan var ţví 2:0 í hálfleik.
Tólf mínútum fyrir leikslok fékk Clément Lenglet tvö gul spjöld međ stuttu millibili og ţar međ rautt.
Einum fleiri bćtti PSG tveimur mörkum viđ. Hinn 19 ára gamli Senny Mayulu skorađi ţremur mínútum fyrir leikslok og Lee Kang-In skorađi fjórđa markiđ. Ţađ gerđi hann úr vítaspyrnu í uppbótartíma.