sun. 15. júní 2025 20:15
Ólafur Guðmundsson fagnar Davíð Snæ Jóhannssyni eftir að sá síðarnefndi jafnaði metin fyrir Aalesund í kvöld.
Davíð allt í öllu í Noregi

Davíð Snær Jóhannsson átti stórleik fyrir Aalesund þegar hann tryggði liðinu jafntefli, 2:2, gegn Stabæk í norsku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld.

Ekki blés byrlega fyrir heimamenn í Aalesund því Stabæk var komið í 0:2 eftir aðeins 14 mínútna leik.

Á 64. mínútu lagði Davíð Snær hins vegar upp mark fyrir Henrik Melland og staðan þá orðin 1:2.

Davíð Snær jafnaði svo sjálfur metin níu mínútum fyrir leikslok. Hann lék allan leikinn á miðjunni hjá Aalesund.

Ólafur Guðmundsson kom svo inn á sem varamaður á 58. mínútu í stöðunni 0:2.

til baka