Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, fyrirliði Þróttar í Bestu deild kvenna í knattspyrnu, segir liðið ekki hafa sýnt sitt rétta andlit í 2:0 tapi þess gegn Stjörnunni í Garðabænum í dag.
Í dag tapaði Þróttur fyrsta leik sínum á tímabilinu, en að níu umferðum loknum situr liðið í efsta sæti deildarinnar með 22 stig.
https://www.mbl.is/sport/efstadeild/2025/06/15/stjarnan_fyrst_til_ad_skaka_throtti/
„Þetta er ótrúlega svekkjandi,“ segir Álfhildur, innt eftir fyrstu viðbrögðum sínum eftir leik.
„Mér fannst að við hefðum átt að mæta beittari og betri í þennan leik. Þær mættu bara sterkari, voru ákveðnari í byrjun og við getum kennt sjálfum okkur um þessa frammistöðu.“
Álfhildur segir spilamennsku liðsins hafa verið langt frá sínu besta í dag þrátt fyrir ágæta kafla inn á milli.
„Mér fannst við alveg ná góðum spilaköflum en við vorum ekki að komast nógu nálægt teignum. Þær voru að fara hratt á okkur og við vorum kannski frekar langt frá mönnum, sérstaklega í seinna markinu þar sem þetta voru svolítið bara okkar mistök.
Við höfum hingað til verið góðar í að verjast og ekki fengið á okkur mikið af mörkum þannig að þetta var ólíkt okkur í dag.“