sun. 15. júní 2025 19:40
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins.
Guðrún: „Upplausn á stjórnarheimilinu“

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekki geta betur séð en að upplausn ríki á stjórnarheimilinu. Hún gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega og sakar hana m.a. um valdbeitingu.

Boðað var til þingfundar í dag kl. 13, sem heyri til tíðinda, enda er afar fátítt að boðað sé til fundar á sunnudögum.

Fundinum hefur nú verið frestað þangað til á morgun og hefst þá klukkan 15.

„Þetta er náttúrulega bara einhver farsi. Maður er alveg hættur að skilja þetta og ég get ekki séð annað en að ríkisstjórnin sé komin í gríðarlega mikið panikk og að það sé bara upplausn á stjórnarheimilinu,“ segir Guðrún í samtali við mbl.is um ástandið sem ríkir nú í þingheiminum.

Fáheyrður þingfundur á sunnudegi

Umdeildum þingfundi frestað

Forgangsröðun ríkisstjórnarinnar „með ólíkindum“

Undanfarna daga hefur svokölluð bókun 35 við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið verið til annarrar umræðu. Miðflokkurinn hefur verið fremstur meðal flokka í þeirri umræðu, en Guðrún segir það skipta miklu máli að það sé ekki stjórnarandstaðan sem fari með dagskrárvaldið á Alþingi.

„Það er ríkisstjórnin sjálf. Það er hún sem setur saman dagskrána og ákveður m.a. þingfundi,“ segir Guðrún og nefnir jafnframt að með ólíkindum sé að ríkisstjórnin hafi ákveðið að setja umræðuna um bókun 35 svo seint á dagskrá, þar sem málið hafi farið úr utanríkismálanefnd fyrir um tveimur mánuðum síðan.

Sömuleiðis hafi verið vitað að Miðflokksmenn myndu vilja tjá sig mikið um málið.

Því sé forgangsröðun ríkisstjórnarinnar mjög sérstök – þá sérstaklega í ljósi þess að hún vilji klára mikinn fjölda mála á síðustu dögum þingsins.

Sigmundur Davíð síðastur í pontu í nótt

Þótti ekki nauðsynlegt í hruninu og í heimsfaraldrinum

Þá ítrekar Guðrún að hefð sé fyrir því að ekki sé fundað á Alþingi á sunnudögum nema þegar brýn nauðsyn sé talin fyrir hendi.

„Það þótti ekki nauðsynlegt í fjármálahruninu, það þótti ekki nauðsynlegt í heimsfaraldri og hefur heldur ekki þótt nauðsynlegt þótt dunið hafi hér yfir alvarlegar náttúruhamfarir.

Þetta er þeirra forgangsröðun og þeirra áhersla þannig að ég ítreka bara að ég get ekki betur séð en það sé fullkomin upplausn á stjórnarheimilinu og að þau bara ráði ekki við þetta verkefni.“

Staðan „skrifast á ríkisstjórnina sjálfa“

Þá segir hún það engu máli skipta fyrir Sjálfstæðismenn þó þeir þurfi að mæta til vinnu á sunnudegi. Það gefi hins vegar til kynna þann vandræðagang sem ríki hjá ríkisstjórninni þegar kemur að því að klára mál og koma þeim áfram.

Guðrún segir ríkisstjórnina hafa verið með yfir 100 mál á þingmálaskrá þegar þingið hófst í febrúar. Það sé umfram getu Alþingis, sem að sögn Guðrúnar hefur síðustu 10–15 ár ekki náð að afgreiða fleiri en 100 mál á heilu þingi, þ.e. bæði á haust- og vormisseri.

„Samanborið við getu þingsins síðustu 10–15 ár þá hefði verið kannski raunhæft að klára í kringum 50 mál.“

Guðrún segir málafjöldann hafa valdið gríðarlegu álagi í nefndum þingsins og að ríkisstjórnin hafi þar af leiðandi keyrt málin í gegn með „miklu offorsi og valdbeitingu“ án þess að málin hafi fengið þá lýðræðislegu umfjöllun sem þeim beri að fá.

Það sé því ekki óeðlilegt að umræðan fari nú öll fram inni í þingsal, þar sem þingmenn og stjórnarandstaðan vilji ræða um þau mál sem þau gátu ekki fjallað um í nefndum.

„Þannig að þessi staða, svo ég segi það enn og aftur, hún skrifast á ríkisstjórnina sjálfa og þá lélegu verkstjórn sem þar er, og valdbeitingu og ólýðræðisleg vinnubrögð.“

til baka