Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving, markmaður Stjörnunnar, segist vera stolt af sínu liði eftir 2:0 sigur Stjörnunnar gegn toppliði Þróttar í níundu umferð Bestu deildar kvenna í knattspyrnu í kvöld.
Auður átti frábæran leik í marki Stjörnunnar sem varð með sigrinum bæði fyrsta liðið til þess að sigra og til þess að halda hreinu gegn Þrótti í deildarleik í sumar.
https://www.mbl.is/sport/efstadeild/2025/06/15/stjarnan_fyrst_til_ad_skaka_throtti/
„Ég er bara ótrúlega ánægð með okkur,“ segir Auður. „Við erum búnar að vera að reyna að pússa liðinu aðeins saman eftir leiðinlegt tap á móti Fram og við ákváðum bara að standa þétt við bakið á hverri annarri og gera þetta saman í dag.“
Þrátt fyrir að vera minna með boltann í leiknum sáu Stjörnukonur við öllum sóknartilraunum gestanna og svöruðu tvívegis fyrir sig með hröðum skyndisóknum.
„Við vildum draga þær aðeins niður til okkar og ná boltanum yfir þær. Svo erum við með mjög góða og fljóta sóknarmenn sem við vildum nýta.“
Næsti leikur Stjörnunnar er á laugardaginn gegn Breiðablik og segir Auður liðið ætla að gefa allt í næsta leik áður en Besta deildin fer í frí vegna Evrópumeistaramóts kvenna í knattspyrnu.
„Ég er ekkert nema spennt að mæta Breiðabliki núna á laugardaginn,“ segir Auður.
„Sjálfstraustið er uppi eftir þennan leik og við ætlum bara að mæta alveg eins á laugardaginn, tæma tankinn og klára þetta. “