Loftvarnarflautur og sprengingar óma nú í Jerúsalem, en Íran hefur hafið nýja umferð loftárása á Ísrael.
Að sögn blaðamanna AFP-fréttaveitunnar, sem staddir eru í Ísrael, hafa sírenur ómað víðsvegar um landið í kjölfar þess að loftvarnakerfi námu eldflaugaskot frá Íran.
Segja 128 hafa verið drepna í Íran
Þá hafa loftvarnir einnig verið virkjaðar í Teheran, höfuðborg Írans, sem og í vesturhluta landsins, en samkvæmt fjölmiðlum í Íran hafa árásir Ísraels harðnað.
Í viðtali við bandaríska miðilinn Fox News sagði Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, að ísraelski herinn hafi nú eyðilagt mikilvæga kjarnorkuinnviði í borginni Natanz í Íran.
Hann gaf jafnframt sterklega í skyn að yfirmaður leyniþjónustu Írans, Mohammad Kazemi, og aðstoðarmaður hans hafi verið drepnir í loftárás í Teheran.