Gísli Þorgeir Kristjánsson var valinn besti leikmaður úrslitahelgi Meistaradeildar Evrópu í handbolta karla eftir 32:26-sigur Magdeburg gegn Füsche Berlín í dag.
Þetta er í annað sinn sem hann er valinn bestur en hann var það einnig árið 2023 þegar Magdeburg vann keppnina síðast.
Gísli var markahæstur í úrslitaleiknum með átta mörk og Ómar Ingi Magnússon, liðsfélagi hans, skoraði sex.