Þýsku liðin Füchse Berlin og SC Magdeburg mættust í úralitaleik Meistaradeildar Evrópu í handbolta karla í Köln í dag þar sem Íslendingalið Magdeburg hafði betur, 32:26.
Magdeburg var fjórum mörkum yfir í hálfleik, 16:12, og var með yfirburði í vörn og sókn. Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon voru markahæstir í fyrri hálfleik hjá Magdeburg með fjögur mörk hvor.
Serradilla Cuenca fékk rautt spjald þegar aðeins fjórar mínútur voru liðnar af seinni hálfleik en hann er einn besti varnarmaður Magdeburg. Berlin náði ekki að nýta sér það en liðið var að elta allan seinni hálfleikinn og minnst munaði þremur mörkum á liðunum. Leikurinn endaði með sex marka sigri Magdeburg, 32:26.
Gísli Þorgeir var markahæstur með átta mörk og Ómar Ingi var þar á eftir með sex mörk.
Þetta er í þriðja sinn sem liðið vinnur Meistatadeild Evrópu.