Vestri fékk KA í heimsókn í 11. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu á Ísafirði í dag. Leikurinn fór 1:0 fyrir heimamenn í blíðskaparveðri. Davíð Smári þjálfari Vestra mætti í viðtal eftir leik og var spurður hvort hann væri ekki sáttur með úrslitin.
„Jú, ég er mjög sáttur með úrslitin. Sérstakur leikur, mér fannst við vera ofan á á öllum sviðum hérna í fyrri hálfleik. Við fórum inn í hálfleikinn og ætluðum að skerpa aðeins á okkur og reyna að verða aðeins betri á boltanum, það kom síðan ekkert út úr því í seinni hálfleik. Hins vegar fannst mér við fá bestu færin bæði í fyrri og seinni hálfleik, Gunnar fær náttúrulega frábært færi hérna í fyrri hálfleik sem hann klárar ekki. Daði fær nokkrar mjög góðar stöður hérna og bara leiðinlegt að ná ekki að skora fleiri mörk. En frekar óþægilegur seinni hálfleikur, skal viðurkenna það.“
KA spilaði vel í seinni, en eru það ekki úrslitin sem skipta máli hérna í dag? Með sigrinum stimplið þið ykkur dálítið aftur frá pakkanum við botninn.
„Botninum, veit það ekki hvort 4. sætið sé það. Við hugsum bara einn leik í einu og við erum ekki svo mikið að spá í töflunni. Ég veit varla hvar við erum í henni núna, hvað þá fyrir leikinn. Á móti kemur er leikurinn í dag var mikil spenna í honum og við vorum aðeins undir í návígjunum á köflum í seinni hálfleiknum. Ég er ekki sáttur við það og heilt yfir ekkert sáttur við seinni hálfleikinn. Síðan liðinu mínu til varnar þá líður okkur gríðarlega vel með boltann fyrir framan okkur, við erum kannski full værukærir í því að líða vel að verjast. Heilt yfir fannst mér KA ekki skapa sér nein hrein færi í leiknum. Eitthvað klafs inni í teig og reyna að sparka boltanum yfir okkur og fá djúp hlaup sem við vissum svo sem fyrir leik. Mér fannst við díla bara vel við það.“
Nú eru það nágrannar KA, Þór, sem mæta hérna næst og nú er sæti í undanúrslitum í bikar í boði, ertu ekki bjartsýnn á það?
„Jú en það er erfiður leikur, sérstaklega komandi úr svona leik, við gerum okkur grein fyrir því. Við ræddum það strax inni í klefa að við þyrftum að næra okkur vel og vera klárir í þann leik. Við vitum alveg hvernig þetta Þórslið er og það verður spennandi leikur og verður gaman að fá þá hingað heim.“