sun. 15. júní 2025 17:05
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA.
Mér fannst þetta vera brot

Vestri fékk KA í heimsókn í 11. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu á Ísafirði í dag. Leikurinn fór 1:0 fyrir heimamenn í blíðskaparveðri. Hallgrímur Jónasson þjálfari KA mætti í viðtal eftir leik og var spurður um fyrstu viðbrögð eftir leik.

„Ég er mjög svekktur og mjög reiður yfir því að hafa tapað þessum leik, þetta er ekki leikur sem við eigum að tapa. Mér finnst við ekki gera alveg nógu vel í fyrri hálfleik. Markið sem þeir skora er að ég held aukaspyrna, brjóta á Hallgrími Mar og ekkert dæmt, fara upp og skora. Mér finnst við í seinni hálfleik gjörsamlega liggja á þeim og fá margar góðar stöður, en inn vildi boltinn ekki.“

10 mínútum fyrir markið hjá Vestra voruð þið að ná góðum tökum á leiknum og markið kom dálítið óvænt, sló það ykkur út af laginu?

„Nei, Vestri eru bara erfiðir þegar þeir komast yfir, þeir liggja aftarlega og gera það vel. Ég var bara svekktur með þetta mark. Þeir voru ekki einu sinni með boltann og mér fannst þetta brot, ekkert dæmt. Já, furðulegar ákvarðanir með brot og gul spjöld þarna í fyrri hálfleik á báða bóga. Ég var ekki alveg að átta mig á þessu.“

Ertu sáttur með seinni hálfleikinn, þið spiluðuð vel en vantaði bara þetta mark?

„Við vorum góðir úti á vellinum og það er erfitt að skora á Vestra og þeir gera þetta vel og eru góðir þegar þeir komast yfir á heimavelli. Mér fannst við skapa rosalega margar stöður og á síðasta andartakinu á Birgir skalla yfir þegar markmaðurinn grípur í tómt. Við sköpum stöður, fáum aukaspyrnur og hornspyrnur sem voru hræðilegar, en gerðum það ekki nógu vel. Fínasti leikur en ég er ósáttur með niðurstöðuna.“

til baka