Lögregla hefur þegar tekið skýrslu af frönsku konunni sem grunuð er um að hafa myrt eiginmann sinn og fullorðna dóttur á Edition-hótelinu í gær. Þá hefur einnig verið rætt við vitni, bæði gesti og starfsfólk á hótelinu.
Þetta segir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sem fer einnig fyrir rannsókn á málinu, í samtali við mbl.is en aðspurður segir hann að rannsókn miði þokkalega áfram. Þá segir hann að verið sé að reyna að skýra atburðarásina fyrir og eftir að morðin áttu sér stað en að ekki sé tímabært að tjá sig frekar um það að svo stöddu.
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/06/14/kona_a_sextugsaldri_urskurdud_i_vardhald/
Vettvangsrannsókn heldur áfram í vikunni
Franskur maður á sextugsaldri og dóttir hans sem er á fertugsaldri fundust látin á hótelherbergi á Edition-hótelinu í miðborg Reykjavíkur í gær. Eiginkona mannsins, sem jafnframt er móðir dótturinnar, er grunuð um verknaðinn og hefur verið dæmd í gæsluvarðhald. Var fjölskyldan á ferðalagi saman.
Spurður hvort rannsókn á vettvangi standi enn yfir segir Ævar svo vera og að hún haldi væntanlega áfram eitthvað út vikuna. Spurður hvar nákvæmlega á hótelinu sé talið að morðin hafi átt sér stað segir hann liggja fyrir að „hótelherbergi sé undir í málinu“.
Spurður hvort einhver vopn hafi fundist á vettvangi segir Ævar ekki tímabært að tjá sig um það.
Hótelstarfsfólk hafði samband við viðbragðsaðila
Greint var frá því í gær að konan sem hefur stöðu sakbornings hafi verið flutt á sjúkrahús með áverka. Spurður út í líðan hennar segir Ævar: „Ég hef ekki upplýsingar um hver líðan er í dag en í gærkvöldi var hún stöðug.“
Þá segir hann aðspurður að lögreglan hafi rætt við konuna og tekið skýrslu af henni en hann vill ekki tjá sig um hvort hún hafi verið samvinnufús eða játað verknaðinn á sig.
Lögreglan hefur einnig rætt við vitni í málinu, bæði starfsfólk og gesti á Edition-hótelinu.
Hann vildi ekki staðfesta hver það var sem kom fyrstur að vettvangi en segir að fyrsta símtal til viðbragðsaðila hafi borist frá starfsfólki hótelsins.
Þá segir hann aðspurður að áfallahjálp hafi verið veitt á vettvangi strax í gær í samstarfi við hótelið og Rauða krossinn.