Elísa Viðarsdóttir fyrirliði Vals var svekkt er hún ræddi við mbl.is eftir tap gegn Fram, 2:1, í Bestu deildinni í fótbolta á Hlíðarenda í dag.
https://www.mbl.is/sport/efstadeild/2025/06/15/fram_sneri_taflinu_vid_gegn_val/
„Við vorum slappar á boltanum. Við náðum ekki að tengja tvær sendingar á milli manna og gáfum þeim boltann trekk í trekk. Þær keyrðu á okkur og nýttu tækifærið. Við héldum boltanum betur í fyrri hálfleik en sköpuðum samt ekki mjög mikið,“ sagði Elísa um leikinn.
Valskonur eru komnar í undanúrslit í bikarnum en gengið í deildinni hefur verið slakt. Liðið er í sjötta sæti með níu stig og sigurlaust frá því í apríl.
„Í bikarnum hefur verið betri taktur í okkur. Við höfum ekki náð takti í deildinni. Við þurfum að líta á stöðuna eins og hún er og grafa djúpt til að reyna að rífa okkur gang. Að sjálfsögðu er þetta erfitt.
Við mætum alla daga og erum að leggja okkur fram við að ná í úrslit en það gengur erfiðlega. Það þýðir ekki að leggja árar í bát og láta sig fljóta með öldunni. Við sigldum á móti straumnum ef við erum með nógu sterkan haus, rífum við okkur upp.
Það þurfa allir að líta inn á við. Við erum enn þá Valur og erum enn þá saman í liði. Við verðum að standa saman og ef við gerum það ekki getum við pakkað í töskur,“ sagði Elísa.