sun. 15. júní 2025 15:47
Leitin að Sigríði er hafin á ný.
Leit að Sigríði er hafin að nýju

Leitin að Sigríði Jóhannsdóttur er hafin á ný. Björgunarsveitarmenn leita nú að Sigríði á „líklegum svæðum,“ samkvæmt Jóni Þór Víglundssyni, upplýsingafulltrúa Landsbjargar. Hann segir lögregluna vera að skoða málið og reyna að finna vísbendingar.

Jón segir hópinn sem leitar nú vera talsvert minni en sá hópur sem leitaði í nótt.

Ekki er vitað um framhald leitarinnar „nú þarf aðeins að líða af þessum degi og sjá hvað hann ber í skauti sér,“ segir hann.

Lögregla lýsti eftir Sigríði og stóð umfangsmikil leit yfir í nótt þar sem um 50 björgunarsveitarmenn stóðu að leitinni. Ekkert er vitað um ferðir hennar síðan á föstudag.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/06/15/50_bjorgunarsveitarmenn_leitudu_ad_sigridi/

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/06/15/logreglan_lysir_eftir_sigridi/

til baka