sun. 15. júní 2025 18:30
Vegagerðin segir að A-leiðin, sem er lengri, muni ekki ganga yfir golfvöllinn eða raska útivistarsvæði og skógrækt en hún muni þó liggja nær þekktu snjóflóðahættusvæði en leið B.
Tvær útfærslur á Fljótagöngum

Fjallabyggð hefur birt áform um Fljótagöng í skipulagsgátt. Það er breyting á Aðalskipulagi Fjallabyggðar og deiliskipulagi útivistarsvæðisins í Hólsdal. Þar má sjá tvær mismunandi útfærslur veglína og gangamunna.

Ráðgert er að göngin verði 5,2 kílómetra löng og muni ganga milli Nautadals í Fljótum að Hólsdal í Siglufirði. Í skipulagsgátt segir einnig að Siglufjarðarvegur verði endurbyggður í framkvæmdunum.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/09/02/er_haegt_ad_flyta_ferlinu/

Eins og sjá má á kortinu til hliðar eru tveir mismunandi gangamunnar til skoðunar Fljótamegin. Hins vegar kemur aðeins ein staðsetning til greina Siglufjarðarmegin.

 

1,7 km munur

Önnur útfærslan, sem kölluð er A, felur í sér talsvert lengri veg Fljótamegin, eða 5,8 km, en í hinni útfærslunni, sem kölluð er B í skipulagslýsingunni. Valmöguleiki B segir að verði 4,1 km Fljótamegin og að göngin verði 5,2 km löng. Áætlað er að veglínur A og B Siglufjarðarmegin verði báðar 2,7 km að lengd, þrátt fyrir að þar sé um tvær mismunandi útfærslur að ræða þeim megin líka. Því verður að gera upp á milli leiðar A sem er alls 13,7 km og leiðar B sem er 12 km leið.

Í skipulagslýsingu Fjallabyggðar segir að í hættumati sem liggi til grundvallar Fljótagöngum sé metið sem svo að snjóflóð geti hugsanlega náð yfir ákveðin vegstæði við tiltekin skilyrði en að sú hætta sé innan ásættanlegra marka. Þar segir að fyrirhugaðar veglínur muni liggja utan svæða þar sem veruleg snjóflóðahætta er talin vera fyrir hendi.

Í jarðgangaáætlun frá 2023 segir að á Siglufjarðarvegi, sem liggur um Almenninga, sé á köflum jarðsig og að ofanflóðahætta sé á kaflanum um Mánárskriður. Þar segir einnig að Fljótagöng myndu leysa af Strákagöng, sem séu tæknilega séð orðin úrelt.

Þar kemur fram að Siglufjarðarvegi sé lokað þó nokkrum sinnum á hverju ári vegna færðar. Á árunum 2010–2022 hafi hann verið lokaður um níu sólarhringa á ári að meðaltali.

Styttri leið þverar golfvöllinn

„Nýir og endurbættir vegir munu fylgja núverandi vegum á köflum en annars staðar geta þeir legið um landbúnaðarsvæði, vatnsverndarsvæði, svæði á náttúruminjaskrá, mikilvægt fuglasvæði, útivistarsvæði og golfvöll,“ segir í matsáætlun Vegagerðarinnar. Þar segir að verði valkostur B fyrir valinu muni veglínan þvera golfvöllinn á Siglufirði, ganga þvert yfir Fjarðará og liggja þaðan í Hólsdal austanverðum. Í Hólsdal er vatnsból Siglfirðinga í grennd við fyrirhugaðan gangamunna Siglufjarðarmegin.

Vegagerðin segir að A-leiðin, sem er lengri, muni ekki ganga yfir golfvöllinn eða raska útivistarsvæði og skógrækt en hún muni þó liggja nær þekktu snjóflóðahættusvæði en leið B.

Ljóst er að ýmsa kosti og galla framkvæmdanna verður að vega og meta þegar kemur að valkostunum tveimur. Í niðurstöðu mats á umhverfisáhrifum segir Vegagerðin að áhrif framkvæmdarinnar verði metin frekar og samanburður gerður á áhrifum veglínanna tveggja á hina ýmsu umhverfis- og samfélagslegu þætti eins og útivist, náttúrufar og landslag. Á grundvelli niðurstöðunnar segir Vegagerðin að hún muni leggja framkvæmdina fram til athugunar Skipulagsstofnunar.

til baka