Donald Trump Bandaríkjaforseti efndi til umfangsmestu hersýningar í Bandaríkjunum í áratugi á 79 ára afmælisdegi sínum í gær á svipuðum tíma og mótmælendur söfnuðust saman víðs vegar um landið og sökuðu hann um einræðistilburði.
Trump sagði Bandaríkin vera „heitasta land heimsins” eftir að hafa horft á skriðdreka og hermenn fara framhjá sér í Washington í gær í tilefni af 250 ára afmæli bandaríska hersins.