sun. 15. júní 2025 14:15
Brynjar Kári Gunnarsson, Mario Matasovic og Veigar Páll Alexandersson eftir undirskriftina.
Þrír framlengja hjá Njarðvík

Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur samið við þá Mario Matasovic, Veigar Pál Alexandersson og Brynjar Kára Gunnarsson um að leika áfram með liðinu.

Allir skrifuðu þeir undir þriggja ára samning.

Mario og Veigar Páll hafa verið lykilmenn hjá Njarðvík á undanförnum árum og þá stóð Brynjar Kári sig vel á sínu fyrsta tímabili með liðinu eftir að hafa komið frá Fjölni.

„Brynjar kom virkilega flottur inn í hópinn okkar á síðasta tímabili og þá eins og mörgum er kannski kunnugt eru Mario og Veigar akkeri í okkar hóp.

Það eru því góð tíðindi fyrir félagið að hafa framlengt við þessa herramenn sem ætla sér ekkert annað en að fara með Njarðvík upp á næsta stig,“ sagði Rúnar Ingi Erlingsson þjálfari Njarðvíkurliðsins í samtali við heimasíðu félagsins.

til baka