Afturelding vann botnslaginn í Bestu deild karla í knattspyrnu gagn ÍA,4:1, á heimavelli í 11. umferð deildarinnar í kvöld.
Afturelding fór upp í sjöunda sæti með sigrinum en ÍA er en á botni deildarinnar með níu stig.
Viktor Jónsson kom Skagamönnum yfir á 17. mínútu þegar Jón Gísli Eyland Gíslason vann boltann hátt uppi og sendi boltann á Viktor sem var með fullt af plássi rétt fyrir utan vítateig heimamanna, tók eina snertingu og þrumaði boltanum í markið, 1:0.
Afturelding jafnaði metin á 33. mínútu en það gerði Elmar Kári Enerson Cogic með sínu fyrsta marki í efstu deild. Afturelding vann boltann hátt uppi og hann rúllaði á Elmar sem lagði boltann fyrir sig og negldi honum í markið fyrir utan teig og staðan 1:1 í hálfleik.
Á 70. mínútu kom Elmar Aftureldingu 2:1 yfir eftir að skot hjá Benjamin Stokke fór í hann, breytti um stefnu og fór í markið.
Stokke skoraði svo þriðja mark heimamanna úr vítaspyrnu á 84. mínútu eftir að Hrannar Snær Magnússon fór niður í teignum.
Hrannar skoraði svo sjálfur fjórða mark heimamanna á 90. mínútu en það kom eftir frábæra sendingu milli varnarmanna frá Stokke. Hrannar tók boltann með sér á teiginn og setti boltann í markið og leikurinn endaði 4:1.