sun. 15. júní 2025 17:55
Sæunn Björnsdóttir spyrnir boltanum í leiknum í dag.
Stjarnan fyrst til að skáka Þrótti

Stjarnan vann verðskuldaðan 2:0 sigur á toppliði Þróttar í níundu umferð Bestu deild kvenna í knattspyrnu í dag. Með sigrinum varð Stjarnan fyrsta liðið til þess að fara með sigur gegn Þrótti á tímabilinu. 

Þróttur situr í efsta sæti deildarinnar með 22 stig en Stjarnan í því sjötta með 12 stig. 

Þróttarar byrjuðu leikinn af meiri krafti og héldu betur í boltann fyrstu mínúturnar. Það var því þvert gegn gangi leiksins þegar Hrefna Jónsdóttir kom Stjörnunni 1:0 yfir með góðu skoti af ágætu færi eftir rúmlega tíu mínútna leik. 

Í kjölfar marks Stjörnunnar héldu Þróttarar áfram að sækja af miklum krafti og skapa sér færi en Stjörnukonur vörðust vel, svöruðu með hættulegum skyndisóknum og héldu þar með jafnræði og spennu í leiknum fram til loka fyrri hálfleiks. 

Seinni hálfleikur fór rólega af stað og var minna um álitleg færi en í þeim fyrri. Það dró því lítið til tíðinda þangað til á 83. mínútu þegar Úlfa Dís Kreye kom boltanum í netið eftir undirbúning frá Fanneyju Lísu Jóhannsdóttur og innsiglaði þar með sterkan sigur heimakvenna. 

Þrátt fyrir tap gegn Stjörnunni í dag situr Þróttur áfram á toppi Bestu deildarinnar með 22 stig að loknum níu umferðum, en með sigrinum færist Stjarnan í það sjötta með 12 stig. 

Tveir leikir eru eftir í umferðinni og eiga bæði Breiðablik og FH, sem sitja í öðru og þriðja sæti deildarinnar, leik á morgun. Með sigri geta bæði lið jafnað Þrótt að stigum á toppnum og þar með hleypt enn meiri spennu í toppbaráttuna.  

 

til baka