Íslandsmeistarar Breiðabliks unnu góðan sigur á nýliðum ÍBV, 2:0, í 11. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu á Þórsvelli í Vestmannaeyjum í dag.
Blikar eru komnir á toppinn með með 22 stig en ÍBV er í sjötta sæti með 14.
Ágúst Orri Þorsteinsson kom Breiðabliki yfir með skrautlegu marki á 21. mínútu leiksins. Þá var hann með boltann við endalínuna vinstra megin i teignum og reyndi skot eða sendingu fyrir sem átti viðkomu í Sigurð Arnar Magnússon og hafnaði í netinu, 0:1. Markið gæti þó verið skráð sem sjálfsmark.
Blikar voru með góð tök á leiknum eftir það og annað mark liðsins kom á 76. mínútu. Þá sendi Valgeir Valgeirsson Tobias Thomsen í gegn sem skoraði af miklu öryggi með glæsilegri afgreiðslu, 0:2. Frábært mark hjá Blikum en Valgeir gerði mjög vel í undirbúningnum.
Eyjamenn fengu nánast engin góð tækifæri sem eftir lifði leiks og unnu Blikar því góðan sigur og héldu markinu hreinu.
Breiðablik fær Fram í heimsókn í næstu umferð en ÍBV fær Val í heimsókn í bikarkeppninni á miðvikudaginn kemur. Í deildinni fær ÍBV næst Aftureldingu í heimsókn í nýliðaslag.