Norðurírska kylfingnum Rory McIlory hefur gegnið brösuglega á US Open-mótinu í golfi í Oakmont í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum.
McIlroy er 10 höggum yfir pari eftir fyrstu þrjá dagana en Bandaríkjamaðurinn Sam Burns leiðir, fjórum höggum undir pari.
Eftir fyrstu tvo hringina sleppti McIlroy að fara í viðtal til fjölmiðla. Aðspurður af hverju hann sleppti því að fara í viðtal sagði McIlroy að hann hefði unnið sér inn réttinn til að gera hvað sem hann vildi.
„Mér finnst ég hafa unnið mér réttinn til þess að gera hvað sem ég vil,“ sagði McIlroy við blaðamenn eftir þriðja hringinn.