Daninn Thomas Frank, nýr stjóri Tottenham, hefur áhuga á að fá samlanda sinn Morten Hjulmand til félagsins
Hjulmand, sem er 25 ára miðjumaður, var í stóru hlutverki hjá Sporting á nýafstaðinni leiktíð en félagið varð portúgalskur meistari.
Samningur Hjulmands rennur út eftir þrjú ár en hann er með klásúlu í samningi sínum sem gerir liðum kleift að kaupa hann á 80 milljónir evra.
Ekki er víst að Hjulmand verði vinsæll meðal stuðningsmanna Tottenham en Daninn er með Arsenal-húðflúr á sér.