Víkingur vann mikilvægan sigur gegn FHL, 4:0, í Bestu deild kvenna í knattspyrnu í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði í dag.
Víkingur er áfram í níunda sæti með sjö stig en FHL er á botninum án stiga.
Fyrri hálfleikur var afar rólegur og lítið af opnum færum. Besta færi fyrri hálfleiksins fengu Víkingar á níundu mínútu þegar Dagný Rún Pétursdóttir átti skot í slána eftir hornspyrnu frá Bergdísi Sveinsdóttur.
Staðan var markalaus í hálfleik.
Eftir rólega byrjun á seinni hálfleiknum kom ótrúlegur kafli Víkinga sem gerði út um leikinn.
Á 67. mínútu náði Víkingur forystunni eftir mark frá fyrirliðanum Bergdísi Sveinsdóttur. Freyja Stefánsdóttir kom með háa sendingu inn á teiginn sem rataði á Bergdísi aleina í teignum sem lyfti boltanum yfir Keelan Terrell í marki FHL.
Aðeins tveimur mínútum síðar tvöfaldaði Linda Líf Boama forystu Víkings. Það kom eftir góða sendingu frá Freyju á vinstri, beint á Lindu á nærstönginni sem skoraði með góðri afgreiðslu.
Dagný Rún Pétursdóttir bætti við þriðja marki Víkinga á 72. mínútu þegar hún fylgdi eftir skoti Lindu Líf sem Terrell varði.
Fjórða markið kom á 80. mínútu þegar Hrafnhildur Eik Reimarsdóttir varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Bergdís átti fasta sendingu fyrir markið sem Hrafnhildur stýrði í sitt eigið net.
Mörkin urðu ekki fleiri í leiknum og lokaniðurstaða því öruggur sigur Víkinga, 4:0.