Vestri fékk KA í heimsókn í 11. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu á Ísafirði í dag. Leikar enduðu með 1:0-sigri Vestra.
Vestri kemur sér upp í annað sæti, upp fyrir Val, með 19 stig. KA er ennþá með níu stig, en spilaði samt ágætis leik í dag.
Leikurinn fór fram í blíðskaparviðri á Ísafirði í dag, 15 stiga hita og léttum andvara. Það var mikill kraftur og ákefð í báðum liðum í byrjun leiks, minna um gæði. Það var stöðubarátta um allan völl og lítið um færi. Gunnar Jónas Hauksson fékk hins vegar frábært færi á 17. mínútu þegar Vestri vann boltann hátt á vellinum og hann komst einn í gegn en Tönning varði frábærlega.
Það var síðan jafnræði með liðunum en KA var aðeins sterkari. Það voru hins vegar heimamenn sem skoruðu fyrsta markið á 35. mínútu. Jeppe Pedersen stal boltanum hátt á vellinum sem kom honum á Montiel sem þykist ætla að skjóta og setur síðan boltann smekklega í nærhornið, 1:0 Vestri.
Fyrri hálfleikurinn fjaraði svo út en það varð leiðinlegt atvik á 45. mínútu. Fatai og Ásgeir flæktust hvor í öðrum og Ásgeir lenti einhvern veginn á tökkunum hjá Fatai og þurfti að fara með sjúkrabíl af vellinum.
KA-menn byrjuðu seinni hálfleikinn af krafti og voru mun sterkari allan hálfleikinn. Hins vegar var vörn Vestra frábær og hélt út leikinn. KA pressaði vel, kom sér í hættulegar stöður en náði ekki að skora.
Hættulegasta færið fékk Birgir Baldvinsson á 64. mínútu þegar Ingimar komst upp hægra megin og átti góða sendingu og Birgir skallaði í stöngina. Römer átti síðan aukaspyrnu rétt fram hjá. Það var síðan á 90. mínútu þegar Daði slapp í gegn en Tönning varði vel.
Heilt á litið var þetta sanngjarn sigur Vestra í miklum baráttuleik.