Íslenski landsliðsmaðurinn Andri Lucas Guðjohnsen er sagður vera til sölu eftir aðeins eitt tímabil í belgísku A-deildinni.
Samkvæmt belgískum miðlum er Gent tilbúið að selja Andra en hann hefur ekki náð sér á strik í Belgíu. Í 46 leikjum skoraði Andri fimm mörk.
Andri Lucas, sem er 23 ára, gekk til liðs við Gent á síðasta ári eftir frábært tímabil í dönsku úrvalsdeildinni með Lyngby.