Fram hafði betur gegn FH, 2:0, í 11. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á heimavelli sínum í Úlfarsárdal í kvöld. Fram fór upp í sjötta sætið með sigrinum, þar sem liðið er með 15 stig. FH er í ellefta og næstneðsta sæti með 11 stig, einu stigi frá öruggu sæti.
Fram byrjaði betur og Vuk Oskar Dimitrijevic, sem lék með FH þar til hann skipti yfir til Fram fyrir tímabilið, skoraði fyrsta markið á 6. mínútu. Hann lagði þá boltann í netið af stuttu færi eftir góða fyrirgjöf frá Róberti Haukssyni.
Hann var aftur á ferðinni á 21. mínútu en þá varði Mathias Rosenörn vel frá honum. Tveimur mínútum síðar skaut Björn Daníel Sverrisson rétt framhjá úr teignum hinum megin.
Kyle McLagan komst nálægt því að skora glæsilegt mark á 32. mínútu en negldi boltanum í stöngina af mjög löngu færi. Kjartan Kári og Sigurður Bjartur Hallsson komust báðir nálægt því að jafna. Kjartan átti góða aukaspyrnu á 25 metra færi sem Viktor Freyr Sigurðsson í marki Fram rétt varði og Sigurður skallaði framhjá úr góðri stöðu.
Mörkin urðu hins vegar ekki fleiri í fyrri hálfleik og Fram fór með 1:0 forskot til búningsherbergja.
Liðunum gekk illa að skapa sér færi framan af í seinni hálfleik og Framarar vörðust tilraunum FH-inga vel. Flestar tilraunir FH-inga voru utan teigs og hættulitlar.
Hinum megin var Kennie Chopart nálægt því að skora annað mark Fram á 70. mínútu en hann negldi boltanum í stöngina við vítateigslínuna eftir snögga sókn.
Annað mark Fram kom sjö mínútum síðar og það gerði varnarmaðurinn Sigurjón Rúnarsson er hann lagði boltann örugglega í markið af stuttu færi eftir að Rosenörn varði aukaspyrnu frá Haraldi Einari Ásgrímssyni.
Kjartan Kári Halldórsson var nálægt því að minnka muninn á 84. mínútu með bylmingsskoti utan teigs en Viktor varði stórglæsilega í stöngina og aftur fyrir. Nær komst FH ekki og Fram fagnaði sterkum sigri.