Fram hafði betur gegn Val, 2:1, í 9. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta á Hlíðarenda í dag. Fram er áfram í fimmta sæti en nú með 15 stig eins og Þór/KA í fjórða. Valur er áfram í sjötta sæti með níu stig.
Eftir rólegar fyrstu mínútur áttu Valskonur góðan kafla um miðjan fyrri hálfleik. Fanndís Friðriksdóttir átti tvo fín skot á 17. og 18. mínútu sem Elaina LaMacchia í marki Fram varði vel og Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir reyndi einnig á bandaríska markvörðinn utarlega í teignum.
Fram gekk illa að skapa sér færi í fyrri hálfleik en Telma Steindórsdóttir setti boltann yfir úr teignum á 32. mínútu eftir horn. Lily Farkas skaut svo hátt yfir fimm mínútum síðar.
Fyrsta markið kom á 39. mínútu og það gerði Jordyn Rhodes fyrir Val. Hún fékk þá boltann í teignum eftir fyrirgjöf frá Bryndísi Eiríksdóttur og skaut í varnarmann og í netið. Tveimur mínútum síðar átti Fanndís skot í stöng.
Mörkin urðu hins vegar ekki fleiri fyrir hlé og var staðan í leikhléi 1:0 fyrir Val.
Þannig var staðan fram að 54. mínútu þegar Una Rós Unnarsdóttir jafnaði með sínu fyrsta marki í efstu deild. Hún fékk þá boltann á vinstri kantinum, lék á Rhodes og skoraði úr þröngu færi en boltinn fór af Lillý Rut Hlynsdóttur á leiðinni í markið.
Sara Svanhildur Jóhannsdóttir var nálægt því að koma Fram yfir á 64. mínútu en hún skaut í slá rétt utan teigs á meðan Tinna Brá Magnúsdóttir í marki Vals hreyfði sig ekki.
Framarar þurftu ekki að bíða lengi eftir markinu hins vegar því mínútu síðar skoraði Murielle Tiernan er hún nýtti sér slaka sendingu til baka frá Kolbrá Unu Kristinsdóttur og skoraði með föstu skoti við vítateigslínuna.
Framliðið var líklegra til að bæta við en Valur að jafna en mörkin urðu ekki fleiri og Fram fagnaði sterkum sigri í Reykjavíkurslagnum.