George Russell, ökuþór Mercedes, er á ráspól í Formúlu 1 kappakstrinum í Kanada í dag. Þetta er annað árið í röð sem Bretinn er á ráspól í Kanada.
Russell var fljótastur allra í tímatökunum í gær en ríkjandi heimsmeistarinn Max Verstappen ræsir annar.
Oscar Piastri, sem leiðir heimsmeistaramót ökuþóra, ræsir þriðji og Kimi Antonelli, liðsfélagi Russell, byrjar fjórði.
Lewis Hamilton, sem keyrir fyrir Ferrari, er fimmti og Lando Norris, ökumaður McLaren, er sjöundi. Charles Leclerc, samherji Hamilton, ræsir áttundi.