sun. 15. júní 2025 10:30
Nabaweeyah McGill.
Liðstyrkur í Laugardalinn

Nýliðar Ármanns halda áfram að styrkja sig fyrir komandi átök í úrvalsdeild kvenna í körfubolta en liðið hefur samið við breska miðherjann Nabaweeyah McGill.

McGill, sem er 23 ára, kemur frá Tampa í Flórída en hún lauk nýverið háskólaferli sínum í Texas. Hún var lykilmaður þar í bæði vörn og sókn, með 5,3 stig og 4 fráköst að meðaltali á leik á síðustu leiktíð.

„Við erum afar ánægð með að fá Nabaweeyah til liðs við Ármann. Hún býr yfir miklum líkamlegum styrk, góðum leikskilningi og hefur sýnt að hún getur haft afgerandi áhrif á leikinn beggja vegna vallarins. Við teljum hana vera mikilvæga viðbót við okkar hóp og hlökkum til að sjá hana í úrvalsdeildinni,“ segir Karl H. Guðlaugsson þjálfari Ármanns í tilkynningu frá félaginu.

til baka