Emmanuel Macron Frakklandsforseti mun heimsækja Grænland í dag. Tilgangurinn er að senda skilaboð um „evrópska samstöðu og stuðning”.
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur lýst því yfir að hann vilji ná yfirráðum yfir Grænlandi.
Macron verður fyrsti erlendi þjóðarleiðtoginn, ef frá er talinn forsætisráðherra Danmerkur, til að heimsækja Grænland síðan Trump hótaði því að sölsa eyjuna undir sig. Hann hefur ekki viljað útilokað að beita til þess valdi.
J.D. Vance, varaforseti Bandaríkjanna, heimsótti Grænland í mars síðastliðnum og var ferðalag hans umdeilt.
Á ráðstefnu á mánudaginn sagði Macron að Grænland og Suðurskautslandið væru „ekki til sölu”.
Macron er væntanlegur til Grænlands klukkan 12.30 í dag.