Ađ minnsta kosti tíu manns voru drepnir í flugskeytaárásum Írans á Ísrael í nótt, ađ sögn ísraelskra yfirvalda.
Í Íran lá reykjarslćđa yfir höfuđborginni Teheran eftir ađ herţota Ísraels gerđi árás á tvćr olíubirgđastöđvar. Langar biđrađir hafa veriđ á bensínstöđvum í Íran undanfarna daga af ótta viđ eldsneytisskort.
Sagđi Bandaríkin ekki tengjast árásum
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagđi í morgun ađ stjórnvöld í Washington tengdust á engan hátt sprengjuárásum Ísraela á Íran sem hófust snemma á föstudaginn.
Trump sagđist ţó ćtla ađ bregđast viđ af fullum krafti ef Íran rćđst á bandarísk skotmörk. Í fćrslu á Truth Social sagđi hann jafnframt ađ „viđ getum auđveldlega náđ samningi á milli Írans og Ísraels til ađ binda enda á ţessi blóđugu átök!!!”
Ísraelska lögreglan sagđi ađ sex manns hefđu veriđ drepin og ađ minnsta kosti 180 sćrst eftir flugskeytaárás á Bat Yam, skammt frá borginni Tel Aviv.
Lofthelgin yfir Ísrael verđur lokuđ í dag, ţriđja daginn í röđ, vegna flugskeytaárásanna frá Íran.
Sendiherra Írans hjá Sameinuđ ţjóđanna segir ađ 78 manns hafi veriđ drepin og 320 sćrst í árásum Ísraela á föstudaginn.
Írönsk yfirvöld höfđu í morgun ekki greint frá heildarfjölda látinna eftir árásir Ísraela síđustu daga. Ţau segja Ísraela ţó hafa drepiđ háttsetta hershöfđingja og kjarnorkuvísindamenn.