Bandaríkjamaðurinn Sam Burns er með eins höggs forystu eftir þriðja hring af fjórum á US Open mótinu í golfi í Oakmont í Pennsylvaniu í Bandaríkjunum.
Burns lék á 69 höggum í dag, einu höggi undir pari vallarins, og er samtals á fjórum höggum undir pari.
Á hælum hans eru Bandaríkjamaðurinn J. J. Spaun og Ástralinn Adam Scott á þremur höggum undir pari og Norðmaðurinn Viktor Hovland sem er á einu höggi undir pari. Scott lék best af þessum í dag, á 67 höggum.
Þetta eru einu fjórir kylfingarnir sem hafa náð að leika erfiðan völlinn í Oakmont undir pari og aðeins Carlos Ortiz frá Mexíkó er á parinu en hann lék líka á 67 höggum í dag.
Scottie Scheffler, efsti maður heimslistans, deilir 11. sætinu með níu öðrum kylfingum á fjórum höggum yfir pari en hann átti sinn besta hring í dag þegar hann lék á 70 höggum.