Það má reikna með töluverðu magni af skeggi og sjarma á Lower East Side í dag.
Þar mun fara fram leit að tvífara Hollywood-hönksins, og verðlaunin eru ekki af verri endanum: búrrító í heilt ár og 50 dollara í vasann.
Sá sem slær í gegn þarf að minna verulega á Pedro Pascal, leikarann sem margir dýrka þessa dagana – enda virðist nánast annað hvert jarm á samfélagsmiðlum tengjast þessum hógværa, fyndna og fallega manni.
Mexíkóski veitingastaðurinn Son Del North fagnar eins árs afmæli með sérstakri tvífarakeppni. Þeir sem telja sig líkasta leikaranum eru hvattir til að mæta og láta ljós sitt skína.
Áhorfendur fá að láta í sér heyra með lófataki, en lokaniðurstaðan verður í höndum dómnefndar Son Del North. Sigurvegarinn fær eitt búrrító í viku næsta árið – auk 50 dollara – og fleiri verðlaun bíða þeirra sem lenda ofarlega í röðinni.
„Tvífarakeppnir eru kannski svolítið 2024,“ skrifaði Entertainment Tonight á Instagram, „en hlustið á okkur – þetta er Pedro Pascal-tvífarakeppni.“
Þetta er semsagt ekki í fyrsta sinn sem vinsæll leikari fær heila keppni helgaða sér, en í fyrra fram álíka keppni þar sem Timothée Chalamet var í aðalhlutverki – og mætti jafnvel sjálfur á keppnina og tryllti líðinn.
https://k100.mbl.is/frettir/2024/10/28/tryllti_lydinn_i_eigin_tvifarakeppni_thratt_fyrir_l/
Það fylgir þó ekki sögunni hvort Pedro sjálfur mætir að þessu sinni.
Keppnin er haldin bæði til að fagna afmælinu og sem kaldhæðin kveðja til Pedro Pascal sjálfs, sem lét eitt sinn hafa eftir sér að það væri ómögulegt að fá almennilegan mexíkóskan mat í New York – nokkuð sem umræddur veitingastaður vill að sjálfsögðu afsanna.
„Förum að versla, stelpur“
Ef eitthvað er að marka kommentin á samfélagsmiðlum, þá virðast margar konur og aðrir aðdáendur kappans ætla að mæta – ekki endilega til að horfa á keppnina, heldur til að sjá hvort þær finni ekki einhvern „sjarmör“ sem líkist Pedro Pascal.
Eins og einn netverji orðaði það: „Hvenær er of snemmt að mæta til að ná góðu sæti? Spyr fyrir vin.“ Annar bætti við: „Förum að versla, stelpur.“
Nokkrir hugsanlegir tvífarar hafa þegar birt myndir af sér en hér má sjá einn slíkan.