lau. 14. júní 2025 22:44
Melissa Hortman og John Hoffman.
Hinn grunaði 57 ára Bandaríkjamaður

Leit stendur yfir að hinum 57 ára gamla Vance Luther Boelter, en hann er grunaður um að hafa skotið tvo bandaríska þingmenn.

Tveir þingmenn Minnesotaríkis í Bandaríkjunum og makar þeirra voru skotnir í dag. 

Mel­issa Hortman, sem átti sæti í fulltrúadeild ríkisþings Minnesota, og eig­inmaður henn­ar voru skot­in til bana. John Hoffm­an, sem á sæti í öldungadeild ríkisþings Minnesota, og kona hans voru skot­in margoft. Þau hafa gengist undir aðgerð en eru í lífshættu.

 

Bandarískir miðlar greina frá því að árásarmaðurinn hafi mætt heim til þingmannanna seint að nóttu.

Um klukkan 2 að staðartíma barst lögreglu tilkynning um að Hoffman og eiginkona hans hafi verið skotin. Um klukkan þrjú fóru lögreglumenn að heimili Hortmans. Þegar þeir komu á vettvang tóku þeir eftir manni við heimili hennar sem virtist vera lögreglumaður. Hann byrjaði hins vegar að skjóta að þeim og komst undan.

 

Umfangsmikil leit stendur nú yfir aðBoelter. Hann er 57 ára Bandaríkjamaður sem starfar hjá öryggisfyrirtækinu Praetorian Guard Security. Á heimasíðu fyrirtækisins kemur fram að hann búi yfir mikli þekkingu á öryggismálum og hafi meðal annars fengið þjálfun frá starfsfólki bandaríska hersins. 

Alríkislögreglan (FBI) kallar eftir upplýsingum frá almenningi og býður allt að 50 þúsund dollara, rúmar sex milljónir íslenskra króna, fyrir upplýsingar sem leiða til handtökuBoelters. Ekki er vitað hvort Boelter hafi staðið einn að verki. 

til baka