Vladímír Pútín Rússlandsforseti sagði bandarískum starfsbróður sínum, Donald Trump, fyrr í dag að Rússar væru reiðubúnir að hefja friðarviðræður við Úkraínu að nýju eftir 22. júní en þá er áformað að fangaskiptum ríkjanna verði lokið.
Pútín og Trump áttu í dag fimmta símtalið sín á milli síðan sá síðarnefndi tók við embætti í byrjun árs en Trump hefur haft það að markmiði að endurvekja samskipti bandarískra og rússneskra yfirvalda.
https://www.mbl.is/frettir/erlent/2025/06/14/russland_og_ukraina_skiptust_a_stridsfongum/
Í yfirlýsingu frá rússneskum yfirvöldum kemur fram að í símtalinu hafi „báðir leiðtogar lýst ánægju sinni með persónuleg samskipti þeirra“.
Þá ræddu þeir einnig átökin milli Írans og Ísraels, sem fara nú stigmagnandi.
Rússland er árásaraðilinn
Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, tjáði sig um þennan símafund Pútíns og Trumps á samfélagsmiðlinum X en minntist ekki á hvort Úkraína myndi samþykkja að hefja friðarviðræður á ný, heldur sagði aðeins að „fangaskiptunum verði lokið og málsaðilar muni ræða næstu skref.“
Þá hvatti hann bandarísk yfirvöld til að „breyta tóninum“ í samskiptum sínum við Rússland og sagði þau vera „of hlý“ og myndu ekki hjálpa til við að binda enda á átökin Úkraínu og Rússlands.
„Öll merki um minnkandi aðstoð, eða það að meðhöndla Úkraínu og Rússland sem jafningja, er mjög óréttlátt. Rússland er árásaraðilinn. Þeir hófu þetta stríð. Þeir vilja ekki binda enda á það,“ sagði forsetinn á X.