lau. 14. júní 2025 22:35
Brian Wilson á tónleikum árið 2012.
Raunamæddur snillingur

Brian Wilson er The Beach Boys. Hann er bandið. Við erum bara helvítis senditíkur. Hann er allt saman. Punktur. Við erum ekkert. Hann er allt.“

Þannig komst Dennis Wilson, bróðir Brians og félagi í hinni geysivinsælu popphljómsveit, einu sinni að orði. Og enginn hefur rengt hann. Brian var drifkrafturinn, heilinn og sálin í The Beach Boys. Um það verður ekki deilt. Hann féll frá á dögunum, rétt fyrir 83 ára afmælið.

Brian Douglas Wilson fæddist í Inglewood í Kaliforníu 20. júní 1942. Faðir hans, Murry Wilson, var misheppnaður lagahöfundur. Hann var geðvondur og honum var laus höndin. Murry hafði átt erfiða æsku og á hann vantaði hluta af eyra, eftir að faðir hans hafði lamið hann. Murry var harður við Brian og í The Telegraph kemur fram að hann hafi tekið úr sér gleraugað og neytt viðkvæman son sinn til að hafa hægðir fyrir framan sig á dagblað. Ekki var á það bætandi að móðir Brians, Audree Wilson, þjáðist af drykkjusýki. „Ég átti góða barnæsku,“ sagði Brian síðar í viðtali, „fyrir utan að pabbi barði mig án afláts.“

Heyrnarlaus á öðru

Brian var heyrnarlaus á öðru eyra, þó ekki vegna barsmíða föður hans, að því er hann upplýsti sjálfur, heldur vegna þess að piltur í hverfinu barði hann í höfuðið. Það kom þó ekki í veg fyrir að hann tæki ungur ástfóstri við tónlist sem fyllti æskuheimili hans. Snemma beygðist krókurinn og Wilson samdi sitt fyrsta lag aðeins fimm ára, á falskt úkúlele. Þrátt fyrir að faðir hans hótaði að mölva hljóðfærið á afturendanum á honum hélt hinn ungi Wilson sínu striki enda kom tónlistin með stöðugleikann sem sárlega vantaði í líf hans. Hún varð eins sjálfsagður hluti af tilveru hans og að sofa og borða; athafnir sem áttu raunar síðar eftir að taka yfir líf hans, þegar hann var orðinn ríkur og frægur.

Bræður Brians, Dennis og Carl, voru tveimur og fjórum árum yngri og saman hlustuðu þeir á tónlist og músíseruðu sjálfir eftir föngum. Meðal helstu áhrifavalda fyrstu árin voru George Gershwin, The Four Freshmen, Phil Spector og Burt Bacharach. Raddanir höfðuðu sérstaklega til hans og gerði ungi maðurinn látlausar tilraunir með formið og studdist gjarnan við gamlan grammófón.

Brian var einnig spartverskur í æsku, var leikstjórnandi í ruðningsliðinu í menntaskóla og hljóp langhlaup. 15 ára vann hann stuttlega með skólanum sem sópari í skartgripabúð. Það var eina launaða starfið áður en hann sló í gegn í tónlistinni. Brian hætti háskólanámi eftir hálft annað ár enda þótti honum kennararnir ekki hafa neinn skilning á tónlist og möguleikunum sem hún bauð upp á.

Bræðurnir þrír, Mike Love, frændi þeirra og vinurinn Al Jardine stofnuðu hljómsveit árið 1961. Hlaut hún fyrst nafnið Pendletones eftir vinsælum skyrtum. Fyrsti smellurinn sem gefinn var út hét Surfin’ og það var plötuútgáfan sem breytti nafni hljómsveitarinnar í The Beach Boys. Brian hugnaðist ekki nafnið en lét sér það í léttu rúmi liggja. „Við vorum búnir að gefa út lag. Það var í sjálfu sér mikið afrek og miklu mikilvægara en eitthvert hallærislegt nafn,“ sagði hann síðar.

Ímyndin var þó svolítið skökk en Dennis Wilson var eini brimbrettadúddinn í hópnum.

Surfin’ ruddi brautina og skyndilega höfðu Strandgæjarnir nóg að gera – enda þótt aurinn streymdi ekki strax í vasann. Faðir bræðranna var umboðsmaður hljómsveitarinnar.

Brian samdi lög í akkorði og fyrsta breiðskífa The Beach Boys, Surfin’ Safari, kom út haustið 1962. Næstu þrjú árin komu þrjár plötur á ári, alls níu stykki. Ótrúleg afköst. Þeim þurfti að fylgja eftir með tónleikahaldi og ferðalögum sem Brian drepleiddist; hann vildi bara vera í hljóðverinu að skapa. Hann upplifði sig aldrei sem skemmtikraft, heldur sem manninn bak við tjöldin. Nick Venet stjórnaði upptökum á tveimur fyrstu plötunum en þá tók Brian sjálfur við. Hann hafði alla þræði í hendi sér.

Mátaðir við Bítlana

Fyrsta topplagið kom sumarið 1964, I Get Around, og þar með var farið að máta Brian Wilson og The Beach Boys við sjálfa Bítlana. Lagið markaði líka þáttaskil að því leyti að upp úr sauð milli Brians og föður hans og sá síðarnefndi var rekinn.

Álagið var mikið og Brian hafði ekki undan að breyta öllum hljóðunum í höfði sér í lög, auk þess sem hann var farinn að fikta við hugvíkkandi efni. Þetta varð til þess að Brian fékk taugaáfall. Læknar kenndu álagi um veikindin og hann jafnaði sig tiltölulega fljótt. Eins gott, útgefandinn andaði ofan í hálsmálið á honum. Mjólkurkýr fá sjaldan orlof. Þarna tóku lögin hins vegar að breytast, urðu hægari og innhverfari en eldhressu smellirnir áður. Brian rak hina bara á túr meðan hann sat heima og samdi og samdi og samdi …

Það var eftir fyrsta sýrutrippið sem Brian samdi hið ódauðlega og sígilda California Girls. Sama kvöld heyrði hann fyrst ógnandi rödd í höfði sér sem átti eftir að fylgja honum árum saman.

Hann var stöðugt á varðbergi, gagnvart Phil Spector, Bítlunum og öðrum sem drífu hann öðrum þræði áfram. Hann yrði að gera betur en þeir.

Úr varð hin framsækna skífa Pet Sounds, sem kom út 1966 og flestum ber saman um að sé öndvegisverk The Beach Boys og fyrsta konseptskífa rokksögunnar. Þar naut Brian fulltingis textahöfundarins Tonys Ashers, sem óvart hafði rekið á fjörur hans. Tilraunamennskan náði þarna hámarki í lögum á borð við Caroline No, Wouldn’t It Be Nice, God Only Knows and Don’t Cry (Put Your Head on My Shoulder).

Lögin og plöturnar héldu áfram að streyma fram eins og elfur en sannleikurinn var sá að andleg veikindi, þunglyndi, ranghugmyndir og fíkniefnaneysla settu sífellt sterkari svip á líf Brians og störf. Þannig var það allt fram á níunda áratuginn.

Bræðurnir dóu ungir

Ekki bætti úr skák að Dennis bróðir hans drukknaði árið 1983, aðeins 39 ára að aldri. Hann var þá orðinn alræmdur fyrir óreglu og almennt rugl; var til dæmis um tíma í slagtogi við költleiðtogann og morðingjann Charles Manson. Hann hafði setið að sumbli daglangt áður en hann dó en stakk sér svo til sunds til að leita að persónulegum eigum eiginkonu sinnar sem hann hafði hent úr snekkju sinni þremur árum áður.

Carl Wilson lést líka langt fyrir aldur fram, 1998, 51 árs. Banamein hans var lungnakrabbi.

 

Brian gekk að eiga fyrri konu sína, Marilyn, árið 1964. Hún hafði stöðugar áhyggjur af andlegri heilsu hans og árið 1975 greip hún til örþrifaráða; leitaði á náðir sálfræðingsins dr. Eugene Landy. Það reyndist afdrifaríkt. Brian var fyrst tregur til en síðan gekkst síðan fús undir afar umdeilda meðferð sem fólst í því að dr. Landy stjórnaði lífi hans frá A til Ö.

Sá gjörningur teygði sig inn í sjónvarpssal en doksi bjó svo um hnútana að Brian kom fram í Saturday Night Live, þar sem hann flutti píanóútgáfu af Good Vibrations meðan dr. Landy stóð álengdar með spjald með áletruninni: Brostu!

Alltaf smurði dr. Landy á reikninginn og steig Stan Love, frændi Brians og umboðsmaður, inn í atburðarásina í lok árs 1976 og rak hann. Sálfræðingurinn átti þó eftir að snúa aftur síðar.

Hjónabandið leið undir lok 1978 og svo illa var Brian haldinn og áttaður að hann lagðist einu sinni til hvílu á sviðinu á miðjum tónleikum.

Brian giftist aftur 1986, konu að nafni Melinda Ledbetter, og átti eftir það betri daga. Dr. Landy var dreginn fyrir fagdóm og dæmdur fyrir óeðlileg vinnubrögð. Melinda lést í fyrra.

Brian Wilson varð sjö barna auðið.

 

til baka