lau. 14. júní 2025 20:30
David Corenswet í hlutverki Súpermanns í nýju myndinni.
Þarf áfram að borða morgunmat

„Ég líkti þessum draumi mínum alltaf við himnaböku og átti með því við að þetta myndi auðvitað aldrei gerast,“ segir bandaríski leikarinn David Corenswet við AP-fréttastofuna og á við hlutverk sjálfs Súpermanns eða Ofurmennisins. „Ég hugsaði með mér: Hver myndi ekki elska að spreyta sig á goðsagnakenndu hlutverki af þessu tagi? Yrði það ekki gjörsamlega geggjað ef við lifðum í heimi þar sem þetta kæmi þó ekki nema til álita?“

Sjálfur var hann of hógvær til að bjóða fram krafta sína en viti menn, þess þurfti ekki. Leikstjóri nýju Súpermann-myndarinnar, James Gunn, var þegar með hann á radarnum. Þegar hann byrjaði að huga að hlutverkaskipan í myndinni árið 2022 kíkti hann á kvikmynd vinar síns Tis West, Pearl, hrollvekju löðrandi í biksvörtum húmor. Og hver var þar fremstur meðal jafningja? Jú, rétt hjá ykkur, David Corenswet. „Þetta er áhugaverður maður sem ég þarf að skoða betur,“ hugsaði Gunn með sér. Þess utan bar West honum vel söguna.

„David var einn af þeim fyrstu sem ég mátaði við hlutverkið,“ upplýsir Gunn í samtali við AP. „Hann gladdi mig strax enda býr hann að gáskalegum sjarma sem blasti ekki endilega við í Pearl. Greinilega húmoristi. Það varð til þess að ég hugsaði: Svei mér þá, þetta gæti verið maðurinn.“

Fleiri voru um hituna, þeirra á meðal breski leikarinn Nicholas Hoult sem á endanum fékk annað hlutverk í myndinni, Lex Luthor, sem hatar Súpermann, eins og við munum, eins og sjálfa pestina.

Corenswet var þó alltaf skör framar og sjálfur talar hann um ánægjulegustu áheyrnarprufu sem hann hafi farið gegnum. Ekki vegna þess að hann fékk hlutverkið, heldur fyrir þær sakir að honum fannst hann fá tækifæri til að virkilega sýna hvað í honum býr.

 

Augnablikið þegar sjálfur Súpermann-búningurinn er mátaður í fyrsta sinn á að vera göldrum líkast, ekki satt? Þannig var það ekki hjá Corenswet, raunar býsna fjarri því. Í stað þess að þeir búningurinn yrðu á augabragði eitt hreinlega passaði hann ekki. Búningahönnuðinum til vorkunnar ber þó að taka fram að hönnunin var á frumstigi og leikarinn byrjaður að kjöta sig upp fyrir hlutverkið.

Þetta small þó á endanum og Corenswet man vel hvenær upp fyrir honum rann að þessi gamli draumur væri í raun og veru að verða að veruleika. Það var þegar hann kom út í fullum herklæðum til að taka upp fyrsta atriðið. Þá horfði tökuliðið allt í einu með öðrum hætti á hann. „Þau ljómuðu eiginlega öll og ég hugsaði með mér: Og þetta er ekki mitt nánasta fólk. Það er á stundum sem þessum sem maður áttar sig á því að eitthvað sé raunverulega að gerast.“

Corenswet sótti innblástur víða, í gömlu hasarblöðin og gömlu myndirnar. Í því sambandi horfði hann ekki síst til Christophers heitins Reeve sem í hugum margra er hinn eini sanni Súpermann. Svo eru þetta auðvitað tveir menn í einum, Súpermann og Clark Kent. Meðan sá fyrrnefndi vekur óskipta athygli hvar sem hann fer og vill að öllum líði vel, reynir Clark Kent eftir fremsta megni að fara með veggjum. Það reynist þó ekki alltaf auðvelt enda er hann á sinn hógværa hátt maður sem hefur sterka og jafnvel áberandi nærveru. Að sögn Corenswets var ein helsta áskorunin að finna jafnvægi milli persónanna tveggja.

Mun breyta lífi hans

David Packard Corenswet fæddist í Fíladelfíu árið 1993. Faðir hans, John Corenswet, var sviðsleikari í New York áður en hann gerðist lögfræðingur, og ýmsir kannast ábyggilega við móðurafa piltsins, rithöfundinn Edward Packard.

Corenswet hóf að leika á sviði barn að aldri og brautskráðist með listagráðu frá Juilliard árið 2016. Hann birtist fyrst í sjónvarpi í þáttunum Moe & Jerryweather sem gengu frá 2014-18 en eldskírn sína á hvíta tjaldinu hlaut hann árið 2018 í pólitíska tryllinum Affairs of State eftir Eric Bross. Var þar í aðalhlutverki. Pearl, sem áður var nefnd, vakti frekari athygli á honum, auk þess sem hann var í aukahlutverki í stórslysamyndinni Twisters í fyrra. Af sjónvarpshlutverkum má nefna The Politician og Lady in the Lake.

Nýja Súpermann-myndin á væntanlega eftir að vekja mikla athygli og umtal og hækka prófílinn á Corenswet til muna. Hann hefur vissulega leikið í stórum myndum áður, eins og Twisters, en Súpermann er eitthvað allt annað. Hann segir myndina raunar hafa breytt lífi sínu um leið og hann var ráðinn til starfa að því leyti að hann hafi þurft að gera hlutverkið að sínu og stuðla að því að myndin yrði sem best úr garði gerð. Leikarinn veit þó á þessu stigi ekkert frekar en við hin hvaða áhrif hlutverkið kemur til með að hafa á feril hans og líf í heild. „Viðbúið er að eitthvað breytist þegar myndin verður frumsýnd,“ segir hann. „En eftir sem áður kem ég til með að þurfa að fara á fætur og fá mér morgunmat.“

Fáum líka nýja Lois Lane

Við fáum ekki bara nýjan Súpermann í næsta mánuði, heldur að sjálfsögðu líka flunkunýja Lois Lane. Það er bandaríska leikkonan Rachel Brosnahan. Hún fæddist í Milwaukee árið 1990 og kom fyrst fram í kvikmynd í litlu hlutverki í hrollvekjunni The Unborn fyrir tvítugt. Í framhaldinu komu alls kyns smærri hlutverk í bæði bíói og sjónvarpi.

Brosnahan er til þessa þekktust fyrir að leika Miriam Maisel í sjónvarpsmyndaflokknum The Marvelous Mrs. Maisel. Markverðasta bíóhlutverkið til þessa er líklega í Patriots Day, þar sem hún lék fórnarlamb sem missti fót í sprengingunum hræðilegu. Eiginmaður Brosnahan er bandaríski leikarinn Jason Ralph og fyrir þau ykkar sem þekkja vel til í töskuheiminum þá er hún náfrænka töskuhönnuðarins Kate heitinnar Spade.

 

til baka