sun. 15. júní 2025 21:00
Í Stúkuhúsinu Unnur Guðmundsdóttir tók við rekstrinum 1. júní.
Menning og kaffihús í Stúkuhúsinu á Skaganum

Um nýliðin mánaðamót tók Unnur Guðmundsdóttir við rekstri Stúkuhússins, kaffihússins í gamla stúkuhúsinu í Byggðasafninu að Görðum á Akranesi. „Móttökurnar hafa verið frábærar og reksturinn gengið vonum framar,“ segir hún um viðbrögð gesta.

Unnur er leikskólakennari að mennt og hefur starfað við fagið á leikskólum undanfarin 17 ár. „Áhugi minn liggur fyrst og fremst í því að styðja við og ýta undir barnamenningu og að foreldrar hafi afdrep til þess að koma með börnin og njóta,“ segir hún. „Þegar mér bauðst að taka við rekstrinum sá ég jafnframt tækifæri til að styðja við barnamenninguna hérna á Akranesi,“ heldur hún áfram og vísar til þess að á efri hæðinni sé hún með listasmiðjur fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Húsið, sem var reist 1915, hafi upphaflega verið menningarhús og hún sjái fyrir sér að það geti orðið það aftur. Tilgangurinn hafi verið uppfærður og húsið standi nú á hæðinni á Görðum með útsýni yfir Akrafjall. „Hugmynd mín er að húsið verði áfram hluti af samfélaginu og nýtist vel sem kaffihús og vettvangur fyrir menningarviðburði.“

Snýst um þarfir viðskiptavina

Kaffihúsið er opið alla daga frá klukkan 10 til 18 nema á miðvikudögum til kl. 21. „Ég er að prófa mig áfram með opnunartímann og útiloka ekki að bæta við fleiri kvöldum ef langi opnunartíminn heldur áfram að vekja lukku,“ segir Unnur. Hún finni fyrir því að samkomustað vanti á Akranesi, þar sem fólk geti komið saman og hist að venjulegum vinnudegi loknum. „Kallað hefur verið eftir því og með rýmri opnunartíma kem ég til móts við þær óskir.“ Hún bætir við að hún leigi salinn líka út og því verði til dæmis lokað á morgun, sunnudag, vegna einkasamkvæmis.

Hún bendir á að þótt hægt sé að kaupa sér kaffi á Akranesi sé þetta eina kaffihúsið í bænum. „Þetta er líka eini staðurinn fyrir utan krá þar sem fólk getur komið saman og fengið sér kaffi eftir vinnu.“

Unnur leggur áherslu á að hún sé ekki í samkeppni við veitingahús. Stúkuhúsið sé kaffihús með alvöru kaffihúsakaffi, kökum og brauði. „Ég finn vel fyrir því að fólki finnst notalegt að koma hérna og slaka á í góðum félagsskap.“ Hún hafi sótt um vínveitingaleyfi og þegar það verði komið geti gestir notið huggulegra kvöldstunda, fengið sér til dæmis ostabakka með glasi af víni.

 

Á efri hæðinni er allt tilbúið fyrir börnin. „Þetta er svona frjáls krakkaklúbbur þar sem börnin gera það sem þau vilja á meðan foreldrarnir slappa af og fá sér heitt kaffi og meðlæti. „Ég bauð upp á skrímslasmiðju fyrir fjölskyldur síðastliðinn sunnudag og hún heppnaðist mjög vel, mikið líf var í húsinu og gaman að finna fyrir áhuganum og upplifa gleðina,“ segir hún. „Ég ætla líka að vera með sögustundir, þar sem ég les fyrir börnin, og svo fæ ég fólk til að koma af og til og bregða á leik. Það er því ýmislegt á prjónunum.“

til baka