lau. 14. júní 2025 13:42
Úkraínskir stríðsfangar við komuna til Úkraínu.
Rússland og Úkraína skiptust á stríðsföngum

Rússland og Úkraína skiptust á stríðsföngum í dag. Það var í fjórða skiptið í vikunni sem slík skipti fóru fram.

„Við höldum áfram að ná okkar fólki úr haldi Rússa. Þetta eru fjórðu skiptin í vikunni,“ sagði Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, á samfélagsmiðlum.

Yfirvöld í Kænugarði greindu einnig frá því að þeim hefðu borist 1.200 lík frá Rússlandi. Rússar sögðu þetta vera úkraínska ríkisborgara og að lík herforingja væru þar á meðal. Ekki var greint frá því hvort Úkraína hefði farið með lík til Rússlands.

Úkraínsku fangarnir voru sumir með áverka við komuna til landsins.

Skiptin eru hluti af samkomulagi milli ríkjanna sem gert var í Istanbúl í Tyrklandi fyrr í mánuðinum.

https://www.mbl.is/frettir/erlent/2025/06/02/somdu_ekki_um_frid_en_nadu_saman_um_fangaskipti/

til baka