lau. 14. júní 2025 21:00
Veitingastaðurinn Kastrup var opnaður var aftur á fimmtudag eftir langa baráttu fyrir leyfisveitingu.
Löng og erfið glíma við embættismenn

Veitingastaðurinn Kastrup við Hverfisgötu var opnaður á ný á fimmtudagskvöldið síðastliðið. Aðstandendur veitingastaðarins sem opnaði loks eftir langa baráttu fyrir leyfisveitingu, segja farir sínar ekki sléttar í samskiptum við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.

Eins og komið hefur fram í Morgunblaðinu var veitingastaðnum lokað í byrjun maí vegna vangreiddra skatta og gjalda. Fyrri eigandi náði ekki samningum við Skattinn og tóku aðstandendur 101 hótels við rekstrinum.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/06/11/long_bid_hja_kastrup_eftir_starfsleyfi/

https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2025/05/02/skatturinn_innsigladi_kastrup_vegna_skulda/

Meðal nýrra rekstraraðila er starfsfólk sem hefur starfað lengi á veitingastaðnum. „Kastrup er einn besti veitingastaðurinn í bænum og fullt af fólki hefur áhuga á að reka hann. En þetta hefur verið mikil glíma við embættismenn Heilbrigðiseftirlitsins sem hafa hreyft sig á hraða snigilsins. Þar innandyra virðist ríkja viðhorf um að verðmæti verði til úr engu og að embættismaðurinn njóti vafans á kostnað veitingamannsins. Það verður ekki til snitsel án þess að kótilettan sé lamin,“ segir Ólöf Skaftadóttir, sem hefur aðstoðað nýja rekstraraðila veitingastaðarins við að opna Kastrup, létt í bragði.

Tíminn virtist standa í stað

„Gott er að gera upp glímu með góðum mat í góðra vina hópi. Ég vil bjóða strákunum í Heilbrigðiseftirlitinu í snitsel um helgina og skála við þá.“

Ólöf hefur staðið í stafni í baráttu fyrir enduropnun Kastrup. Hún segir að hugarfarsbreytingar sé þörf innan stjórnvaldsins. „Ég held að það sé mikilvægt að bera meiri virðingu fyrir því að þarna undir eru störf og lifibrauð fólks. Tíminn virtist standa í stað á skrifstofunum þeirra í Borgartúni og það var mjög erfitt að fá svör eða nokkrar leiðbeiningar. Tíminn virðist samt eingöngu afstæður hjá Heilbrigðiseftirlitinu, því hjá öllum öðrum opinberum batteríum tikkuðu dráttarvextir á meðan Heilbrigðiseftirlitið dundaði sér við að finna nýjar og nýjar ástæður fyrir því að ekki væri hægt að opna,“ segir hún.

Búið að flækja einfalda hluti

„Það virtist til að mynda koma mönnum innan Heilbrigðiseftirlitsins í opna skjöldu að við Hverfisgötu 6 hefði verið rekinn veitingastaður um árabil. Heilbrigðiseftirlit gegnir mikilvægu hlutverki en það fjallar um um matvælaöryggi og hollustuhætti, ekki skattamál þriðja aðila.“

Ólöf segir að yfirstofnanir Heilbrigðiseftirlitsins, borgin, stjórnmálamenn þvert á flokka, embættismenn, ráðuneytið, sýslumaður og allir þeir sem komi að leyfisveitingum á svona starfsemi hafi lagt sig fram til að hægt væri að opna þennan fullbúna veitingastað hvar fjöldi fólks hefur atvinnu sína. „Auðvitað má spyrja sig hvers vegna þarf aðkomu svona margra aðila að opnun eins veitingastaðar. En það er vegna viðhorfsins sem ríkir gagnvart veitingahúsarekstri innan Heilbrigðiseftirlitsins sem Kastrup hefur staðið auður á fjölförnum stað í borginni með miklum tilkostnaði allra hlutaðeigandi og hryggilegri götumynd.

 

Ég hef mikla samkennd með fólki sem leggur allt undir til þess að gæða borgina lífi, búa til störf og skatttekjur, en lendir í þessu frumskógarregluverki og embættismönnum sem finna ekki hjá sér þörf til að leiðbeina borgurunum í gegnum þetta völundarhús reglna og laga. Við höfum heyrt fjölmörg dæmi þessa í fjölmiðlum undanfarna daga og mér finnst flott hjá Jóhanni Páli Jóhannssyni, ráðherra málaflokksins, að gefa sér tíma í að rýna þetta regluverk og einsetja sér að einfalda það. Það er búið að flækja einfalda hluti með slíkum hætti undanfarin ár að það þarf einhvern fullorðinn til að grípa inn í og tengja í jörð svo að einhver rekstur þrífist í þessari borg. Það má ekki verða svo að skapandi og framtakssamt fólk týnist hreinlega inni á einhverjum skrifstofum í Borgartúni og svo bara spyrjist ekkert til þess meir. Vonandi verður Jóhann Páll sá sem þessu breytir.“

Fleiri eru í sömu sporum

Allt er gott sem endar vel segir Ólöf því nú hefur veitingastaðurinn fengið leyfi og var opnaður á fimmtudagskvöld. Þar verður sami gamli matseðillinn og sama starfsfólk og verið hefur, en 101 hótel tekur við rekstri veitingastaðarins ásamt starfsfólki veitingastaðarins sem fastakúnnar þekkja.

„Ég vil senda ljós á alla þá veitingamenn sem eru í sömu sporum og ég hef lesið frásagnir af undanfarna daga. Ég tek glöð við símtölum ef menn þurfa aðeins að blása eftir samskipti sín við þetta stjórnvald. Þau geta gert hvern sem er gráhærðan.“

til baka