Í það minnsta 10 manns hafa látist í miklum flóðum í Texas í Bandaríkjunum. Fjölda fólks er saknað og stendur björgunarstarf yfir í ríkinu.
Borgaryfirvöld í San Antonio segja viðbragðsaðila hafa farið í yfir 86 björgunaraðgerðir vegna flóðanna.
Miklar rigningar hafa verið á svæðinu frá því á fimmtudag og hafa þær valdið miklu flóði á götum og hafa bílar runnið út af vegum.
„Hugur okkar er hjá fjölskyldum þeirra sem hafa misst ástvin í flóðunum í vikunni og hjá þeim fjölskyldum sem leita áfram að ástvinum sínum,“ segir Ron Nirenberg, borgarstjóri San Antonio, í færslu á samfélagsmiðlinum X. Hann þakkar einnig viðbragðsaðilum fyrir störf sín.