lau. 14. júní 2025 13:00
Eftir formlega kvörtun til ESB vegna brota á reglum um ríkisaðstoð samþykkti Svíþjóð svokölluð almenn húsnæðislög árið 2011.
Varar við endurskoðun á reglum

Martin Lindvall, stefnumótunarstjóri samfélagsmála hjá Félag fasteignaeigenda í Svíþjóð, varar við því að fyrirhuguð endurskoðun Evrópusambandsins á reglum um ríkisaðstoð geti skaðað fjárfestingarskilyrði í húsnæðismálum.

„Það er gríðarleg þörf á einkafjármagni til að fjármagna nýbyggingu húsnæðis og orkusparandi endurbætur á eldri byggingum um alla Evrópu. Til að laða að slíkt fjármagn er nauðsynlegt að ESB og einstök aðildarríki tryggi jafnræði milli opinberra og einkarekinna húsnæðisfyrirtækja,“ segir Martin í samtali við Morgunblaðið.

Eftir formlega kvörtun til ESB vegna brota á reglum um ríkisaðstoð samþykkti Svíþjóð svokölluð almenn húsnæðislög árið 2011. Síðan þá hafa bæði sveitarfélög og einkafélög þurft að starfa á viðskiptalegum forsendum.

„Þetta hefur skapað jafnt samkeppnisumhverfi og gert sænska leigumarkaðinn aðlaðandi fyrir erlenda fjárfesta. Með fyrirhugaðri endurskoðun á reglum um ríkisaðstoð mun ESB grafa undan þessu,“ segir Martin. 

til baka