lau. 14. júní 2025 09:00
First Water hefur greitt Hraundröngum að fullu.
First Water hafnar ásökunum

Fyrirtækið First Water hafnar því alfarið að bera ábyrgð á deilu eins og kynnt var í fréttum Sýnar fimmtudaginn 12. júní, þar sem fjallað var um átök milli byggingarfyrirtækisins Hraundranga og undirverktaka þess. Í fréttinni kom fram að First Water skuldaði Hraundranga 200 milljónir króna, en samkvæmt yfirlýsingu First Water á sú fullyrðing sér enga stoð í raunveruleikanum.

Í tilkynningu til hluthafa segir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri First Water, að riftun verksamnings við Hraundranga hafi byggst á lögformlegum forsendum, þar á meðal vegna verulegra tafa, ófullnægjandi verkliða og brota á samningsákvæðum. Öll skref hafi verið tekin í samráði við lögmenn félagsins.

First Water hafi jafnframt greitt Hraundranga fyrir sína verkhluta og því séu vangoldnar greiðslur Hraundranga til undirverktaka þess ekki á ábyrgð First Water. „Skuldir Hraundranga við sína undirverktaka eru ekki á ábyrgð First Water og deilur þessara aðila verða að leysast á lögbundinn hátt,“ segir í tilkynningunni.

Eggert lýsir jafnframt vonbrigðum með að nafn First Water hafi verið tengt við atvik sem komu fram í fréttinni, þar sem greint var frá árásum á heimili forsvarsmanna Hraundranga. Hann áréttar að félagið sé ekki aðili að þeirri deilu og kalli eftir vandaðri og réttari miðlun upplýsinga.

„Mér þykir leitt að félagið okkar sé dregið inn í mál sem við berum ekki ábyrgð á og einnig ömurlegt að árásir á starfsmenn séu viðhafðar í okkar friðsæla landi,“ segir Eggert að lokum.

til baka