lau. 14. júní 2025 08:00
Sólin fer parinu vel!
Patrik og Friðþóra eldheit í Króatíu

Það væsir ekki um tónlistar- og athafnamanninn Patrik Atlason, eða Prettyboitjokko eins og hann er kallaður, og kærustu hans, Friðþóru Sigurjónsdóttur pilates-kennara í World Class, en parið er statt í sólríku fríi í Króatíu, einum heitasta áfangastað Evrópu þessa stundina.

Patrik og Friðþóra hafa gefið innsýn í fríið á samfélagsmiðlasíðum sínum og birtu meðal annars eldheitar kroppamyndir.

Friðþóra deildi einnig myndskeiði sem sýnir parið á rúntinum í blæjubíl.

https://www.mbl.is/frettir/burdargrein/2024/08/16/fridthora_og_patrik_i_astarfrii_a_spani/

Patrik og Friðþóra láta ekki líða langt á milli utanlandsferða og sýna gjarnan frá fríum sínum á Instagram og TikTok.

Parið dvaldi meðal annars á lúxushótelinu Marbella á Spáni síðasta sumar og byrjaði árið á skíðum í Selva á Ítalíu.

https://www.mbl.is/ferdalog/frettir/2025/01/09/prettyboitjokko_svakalegur_i_selva/

View this post on Instagram

A post shared by Patrik Snær Atlason (@patrikatlason)

 

 

View this post on Instagram

A post shared by FRIÐÞÓRA SIGURJÓNSDÓTTIR (@fridtora)

 



til baka