Við Sörlaskjól í Vesturbæ Reykjavíkur er mjög smekkleg hæð með studio-íbúð í kjallara til sölu. Íbúðin er fallega innréttuð og er passað upp á að allir litir passi saman.
Hæðin er þriggja herbergja með hjónaherbergi og baðherbergi. Eignin skiptist í gang, baðherbergi, hjónaherbergi, barnaherbergi, eldhús, stofu, borðstofu og studio-íbúð með geymslu í frístandandi bílskúr.
Íbúðin er nýuppgerð með nýlegri eldhúsinnréttingu, nýju uppgerðu baðherbergi og nýlegu eikarparketi.
Sörlaskjól er draumastaður margra sem vilja setjast að í Vesturbæ Reykjavíkur. Horft er út á hafið frá stofuglugga hæðarinnar og er útsýnið óhindrað til suðurs yfir Álftanes.
Á fasteignavef mbl.is: Sörlaskjól 58