sun. 15. júní 2025 09:01
„Við setjum verkið í nýtt samhengi, en það er fimm metra hátt og gert úr böndum í mismunandi litum, þetta er endurunninn textíll sem ég ríf niður og raða svo litunum upp.“
Fimm metra hátt verk í Hallgrímskirkju

„Þegar verkið var hluti af samsýningu í fyrra á Korpúlfsstöðum vegna 50 ára afmælis Textílfélagsins fengum við Ægis Zita sýningarstjórinn minn þessa hugmynd saman, að það væri stórkostlegt ef þetta verk fengi meira rými. Við létum okkur dreyma um fallegasta sýningarrými sem væri í boði, sjálfa Hallgrímskirkju, svo að við lögðumst í heimildar- og rannsóknarvinnu, gerðum greinargerð með rökstuðningi og bjuggum til þrívítt módel til að sýna hvernig þetta myndi líta út. Í framhaldinu fórum við til fundar við teymi í kirkjunni og gerðum tilboð um að sýna verkið þar,“ segir Ídris Róbertsdóttir textíllistakona, en einkasýning hennar, annar gluggi til hægri, verður opnuð í dag, sunnudaginn 15. júní, í Hallgrímskirkju.

Annar gluggi til hægri er innsetning þar sem textíll ræður ríkjum, eitt elsta listform veraldar sem hefur fengið aukna og verðskuldaða athygli á undanförnum árum. Alla tíð hefur verið mjög rík hefð fyrir textíl í kirkjum, hann er samofinn sögu kristni, hvort sem það eru höklarnir sem prestar bera eða altarisklæðin.

 

Birtan skín í gegnum verkið

„Við Ægis Zita sýningarstjórinn minn erum með þessari sýningu að kanna samtal anda og efnis inni í kirkjunni. Við tökumst á við staðsetninguna, rýmið og arfleifðina. Við setjum verkið í nýtt samhengi, en það er fimm metra hátt og gert úr böndum í mismunandi litum, þetta er endurunninn textíll sem ég ríf niður og raða svo litunum upp.

Á gólfinu er landslag með þrívíðum textílverkum sem ég saumaði, óf og heklaði, ég bjó til þúfur og fleira sem er mitt á milli þess að vera landslag og abstraktverk. Á sýningunni á Korpúlfsstöðum var hægt að ganga inn um eitt horn rýmisins og út um annað horn á ská á móti, en á sýningunni núna verður allt tekið í sundur og það fer á hreyfingu í kirkjunni í rými sem er töluvert stærra.

Í engri annarri kirkju á Íslandi má sjá lofthæð á við þá sem er í Hallgrímskirkju og þar skapa línur og form sérstakan heim. Verkið mitt mun hanga í 15 metra hæð og birtan frá glugganum mun skína í gegnum verkið. Allt fer á flug í afmörkuðu rými á milli fjögurra súlna kirkjuskipsins framan við gluggann sem er annar til hægri þegar gengið er þangað inn. Við nýtum súlurnar sem ramma utan um verkið og hægt verður að njóta þess bæði í návígi og úr fjarlægð. Hlutarnir sem ég set upp í kirkjunni eru þeir sömu og voru á sýningunni á Korpúlfsstöðum, en þeir eru í allt annarri uppröðun, þannig að ég er í raun að gera verkið með nýjum hætti.“

Fóru á slóðir Hallgríms

Ídris segir að hún og Ægis hafi við undirbúning verksins farið í ferðalag á slóðir Hallgríms Péturssonar, sálmaskáldsins sem kirkjan er kennd við, en hann var uppi á árunum 1614–1674.

„Við skoðuðum fæðingarstað hans fyrir norðan, Gröf á Höfðaströnd, og uppeldisstað hans, Hóla í Hjaltadal. Við heimsóttum líka Hvalsneskirkju þar sem hann starfaði, sem og Hallgrímskirkju í Saurbæ. Alls staðar sem við fórum fannst okkur tenging við verkið mitt vera mjög sterk, til dæmis við steindu gluggana eftir Gerði Helgadóttur í Hallgrímskirkju í Saurbæ, en myndgler hennar rímar vel við verkið mitt í litum og línum.

Við leikum okkur líka með þá staðreynd að bein sjónlína er frá öðrum glugga til hægri í Hallgrímskirkju á Skólavörðuholti til Suðurnesja, þar sem Hallgrímur bjó um tíma ásamt Guðríði þegar hann fluttist heim frá Danmörku. Á Suðurnesjum hafa verið litríkar jarðhræringar undanfarið, en línan frá glugganum er í raun sama lína og flekaskilin eru á og Golfstraumurinn, auk þess er bein lína á Flugstöðina í Keflavík. Allt er á hreyfingu í þessari línu, enda er verkið ekki eins stabílt og það var á Korpúlfsstöðum, það fer svolítið á flug og hreyfingu eftir flekaskilunum.“

 

Kirkjan er menningarsetur

Ídris segir það vera mikinn heiður að fá að sýna í Hallgrímskirkju, hún sé ekki aðeins söguleg bygging heldur einstakur listsýningastaður.

„Rýmið er svo undurfallegt. Ég kynnti mér upphaf Hallgrímskirkju og framkvæmdaferlið og þar kemur skýrt fram þegar hún er reist að hún á að vera menningarsetur, staður menningar og lista, þar sem listin á að njóta sín og alþjóð á að njóta lista. Þetta er hús sem kallar á að vera og njóta.

Tónleikahald er öflugt í kirkjunni og mér finnst mjög ánægjulegt að fólk sem kemur þangað til að njóta tónlistar hafi verkið mitt fyrir augunum. Sama á við um allt það fólk sem kemur til messu í kirkjunni og alla ótalmörgu ferðamennina sem heimsækja kirkjuna,“ segir Ídris og bætir við að heilmikið umstang fylgi því að setja upp svona sýningu, en ótrúlega öflugt teymi hafi tekið á móti þeim Ægisi í kirkjunni í tengslum við sýninguna. Fremsta meðal jafningja nefnir hún Ingu Jónsdóttur, sem er listrænn stjórnandi kirkjunnar.

Í kynningu á sýningunni segir að: „innsetningin nái að leiða huga áhorfenda langt út fyrir hið afmarkaða rúm hennar en einnig inn á við. Með því að leysa formið upp, opna hálflokað form skúlptúrsins í miðjunni gefur Ídris Róbertsdóttir verkinu ákveðna spennu þar sem hið jarðbundna togast á við hið upphafna og ósjálfrátt koma í hugann ljóðlínurnar Upp, upp mín sál og allt mitt geð ... úr Passíusálmunum.“

Sýningin annar gluggi til hægri verður formlega opnuð strax eftir messu í dag og stendur til 31. ágúst.

til baka